Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Uppgjör og endurútreikningur

Útskýring á uppgjörsbréfi

Hér er myndband sem útskýrir uppgjörsbréfið sem birt verður 11. maí.

Endurútreikningur á lífeyrisgreiðslum þínum frá Tryggingastofnun fer almennt fram í síðari hluta maí ár hvert eftir skil á skattframtali.

Þá er farið yfir hvort þú hafir fengið rétt greitt frá TR á síðasta ári miðað við þín réttindi.

Almennar upplýsingar

Þú færð tilkynningu um niðurstöðu uppgjörs og endurútreiknings á Mínum síðum TR.

Þar getur þú séð hvort þú hafir fengið:

Þegar uppgjöri er lokið sendir TR uppfærða launamiða til skattsins með endanlegri niðurstöðu, í kjölfarið endurskoðar skatturinn álagningu ársins.

Andmælaréttur

Ef þú ert ósammála niðurstöðu uppgjörs getur þú sent inn rökstudd andmæli í gegnum Mínar síður TR. Hægt er að senda inn andmæli til og með 27. maí.

Hér er myndband sem sýnir hvernig senda má andmæli.

Kæra niðurstöður uppgjörs

Ef andmælum þínum hefur verið svarað og þú telur enn að niðurstöður uppgjörs séu ekki réttar er mögulegt að kæra niðurstöðurnar til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Ef þú færð ekki niðurstöður í maí

Það eru ekki allir greiðsluþegar sem fá uppgjör í maí en ýmsar ástæður fyrir því geta verið að þú fáir uppgjör seinna.

Algengustu ástæður fyrir því eru:

  • þú ert lífeyrisþegi og býrð í útlöndum,

  • þú skilaðir skattframtali of seint,

  • þú hefur ekki skilað skattframtali.

Ef þú vilt nánari skýringar á niðurstöðu uppgjörs getur þú sent okkur erindi í gegnum Mínar síður TR.