Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Handbók ökuprófa

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

9. júlí 2025 -

Gildir frá 01.01.2024

    Um handbókina

    Tilgangur með handbók ökuprófa er að setja ramma utan um framkvæmd og utanumhald verklegra og bóklegra ökuprófa sem prófamiðstöð annast. Handbókin er í stöðugri endurskoðun og er birt með fyrirvara um breytingar.

    Inngangur

    Tengiliðir ökuprófa

    Prófamiðstöð skal tilnefna tengilið/forsvarsmann vegna ökuprófa. Sá aðili heldur utan um samskipti við Samgöngustofu vegna ökuprófa. Ábendingar og annað er viðkemur ökuprófum skal almennt senda á okurettindi@samgongustofa.is.

    Athugasemdir við próf

    Ef prófdómari fær ábendingar um eða tekur eftir einhverjum ágöllum á prófi (t.d. orðalag spurninga) skal tilkynna slíkt til tengiliðar ökuprófa eins fljótt og auðið er. Tengiliður kemur ábendingum til Samgöngustofu með tölvupósti þar sem tekin er ákvörðun um nauðsynleg viðbrögð.

    Samráðsfundir

    Tengiliðir ökuprófa og fulltrúar Samgöngustofu funda mánaðarlega um stöðu ökuprófa.