Bólusetningarvika í Evrópu - Mikilvægi bólusetninga barna
Mikilvægt er að við höldum uppi þeirri góðu þátttöku sem verið hefur hér á landi í almennum bólusetningum til að koma í veg fyrir faraldra smitsjúkdóma. Og ef almenn þátttaka í bólusetningum er nægilega góð myndast einnig hjarðónæmi í samfélaginu sem verndar þá aðra sem ekki er hægt að bólusetja t.d. vegna aldurs (ungbörn) eða sjúkdóms.