Fara beint í efnið

10. júní 2024

Rannsókn á joðhag barna á Íslandi

Rannsókn á joðhag 2,5 árs barna á Íslandi er nú hafin á vegum embættis landlæknis, Háskóla Íslands, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Markmið rannsóknarinnar er að mæla joðstyrk í þvagi 2,5 ára barna til að meta joðhag þeirra. Vegna minni joðneyslu fullorðinna er til skoðunar að nota joðbætt salt við brauðframleiðslu á Íslandi. Hins vegar er mikilvægt að aðgerðir til að bæta joðhag landsmanna skaði ekki viðkvæma hópa eins og ung börn. Því er þörf á upplýsingum um joðhag ungra barna til að meta hvort óhætt sé að mæla með notkun á joðbættu salti við brauðframleiðslu. Rannsóknin er unnin með samþykki vísindanefndar heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Vísindasiðanefndar.

Átta heilsugæslustöðvar taka þátt í rannsókninni og kynna hana fyrir foreldrum og forráðamönnum 2,5 ára barna sem koma með barnið sitt í skoðun. Það eru heilsugæslustöðvarnar í Árbæ, Garðabæ, Glæsibæ, Hamraborg, Hlíðum, Höfða, Salahverfi og Sólvangi. Það er valfrjálst að taka þátt í rannsókninni. Allar upplýsingar um rannsóknina, ásamt leiðbeiningum um hvernig þvagsýni skuli tekið, verða aðgengilegar á íslensku og ensku.

Joð er mikilvægt steinefni sem við fáum í snefilmagni úr fæðunni. Það er nauðsynlegt fyrir myndun skjaldkirtilshormóna sem eru okkur mikilvæg, meðal annars á meðgöngu fyrir eðlilegan vöxt og þroska fósturs. Við fáum helst joð úr mjólkurvörum (fyrir utan ost) og mögrum fiski eins og ýsu og þorski. Í rannsókn sem gerð var árin 2017-2018 greindist ófullnægjandi joðhagur meðal barnshafandi kvenna í fyrsta sinn. Einnig sýndu niðurstöður landskönnunar á mataræði árin 2019-2021 að fullorðnir fá almennt ekki nægilega mikið af joði.

Frekari upplýsingar
Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjórar næringar

Ítarefni