Sameiginlegt minnisblað landlæknis, sóttvarnalæknis og ríkislögreglustjóra
Í minnisblað dags. 4. mars 2020 lýsa landlæknir, sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóri yfir áhyggjum vegna yfirstandandi og yfirvofandi verkfalla á vinnumarkaði og skora á þá aðila sem nú eru í kjarasamningsviðræðum að leita allra leiða til að enda þær verkfallsaðgerðir sem nú eru í gangi og jafnframt koma í veg fyrir þær aðgerðir sem nú eru fyrirhugaðar.