Skýrsla starfshóps heilbrigðisráðuneytisins um heilsueflingu aldraðra komin út
Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta tillögur um heilsueflingu aldraðra hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Starfshópnum var falið að fjalla um fyrirkomulag samstarfsverkefna á sviði heilsueflingar sem gera öldruðum kleift að búa í heimahúsum eins lengi og kostur er.