Fara beint í efnið

27. júní 2022

Sjálfsvíg 2021

Embætti landlæknis hefur nú gefið út tölur um sjálfsvíg fyrir árið 2021, samhliða birtingu talna um aðrar dánarorsakir

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis hefur nú gefið út tölur um sjálfsvíg fyrir árið 2021, samhliða birtingu talna um aðrar dánarorsakir.

Fjöldi sjálfsvíga árið 2021 var 38, eða 10,2 á hverja 100.000 íbúa. Þessar tölur eru áþekkar tölum fyrri ára en að meðaltali voru 38 sjálfsvíg á ári síðustu fimm árin, 2017-2021, eða 10,7 á hverja 100.000 íbúa. Sé litið til fimm ára tímabilsins þar á undan, 2012-2016, voru sjálfsvíg að meðaltali 42 á ári, eða 12,9 á hverja 100.000 íbúa. Ítarlegri tölfræði um sjálfsvíg má finna í gagnvirku mælaborði og töflum.

Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á upplýsingum um dánarorsakir einstaklinga með lögheimili á Íslandi við andlát sem skráðar eru í dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð vísvitandi sjálfsskaði (ICD-10 kóðar: X60-X84). Skráningu dánarmeina er ekki hægt að ljúka fyrr en öll gögn og krufningaskýrslur frá réttarmeinafræðideild Landspítala hafa borist embætti landlæknis. Ferlið getur því verið nokkuð tímafrekt.

Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg

Vegna fámennis þjóðarinnar þá geta litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni milli ára. Talsvert miklar sveiflur þurfa að verða til þess að hægt sé að staðhæfa að um marktæka breytingu sé að ræða. Því er mikilvægt að túlka ekki 6 mánaða bráðabirgðatölur sem vísbendingu um aukningu eða samdrátt á tíðni sjálfsvíga. Embætti landlæknis vinnur, ásamt fjölda samstarfsaðila, að innleiðingu aðgerðaáætlunar frá 2018, til að fækka sjálfsvígum á Íslandi en þar er um að ræða fjölþættar aðgerðir.

Embætti landlæknis hefur gefið út leiðbeiningar til fjölmiðla um ábyrga umfjöllun sjálfsvíga. Ábyrg og fræðandi umfjöllun um sjálfsvígshegðun þar sem einblínt er á batasögur og hjálparúrræði geta haft þau áhrif að einstaklingar í vanlíðan leiti sér hjálpar.

Það er hjálp til staðar

Mikilvægt er að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda, hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta samtakanna s.552-2218. Píeta samtökin bjóða einnig uppá ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.

Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendum við á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð 551-4141 og hjá Pieta samtökunum s.552-2218.

Nánari upplýsingar:
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir , gudrun.j.gudlaugsdottir@landlaeknir.is , verkefnisstjóri lýðheilsusviði
Jón Óskar Guðlaugsson , verkefnisstjóri heilbrigðisupplýsingasviði