Sjálfsvígsforvarnir
Fjölmiðlar og sjálfsvígsforvarnir
Tíðni sjálfsvíga hefur lítið breyst undanfarna áratugi á Íslandi. Öll forvarnarvinna sem getur stuðlað að fækkun sjálfsvíga er mikilvæg og þar sem áhættu- og verndandi þættir sjálfsvíga eru gjarnan flókið samspil félagslegra og geðrænna áhættuþátta, er æskilegt að forvarnarvinna eigi sér stað á mörgum sviðum, s.s. heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, skólum og með opinni og upplýstri umræðu í samfélaginu. Fjölmiðlar leika þar stórt hlutverk.
Umfjöllun fjölmiðla mikilvæg í forvörnum
Fjölmiðlar geta miðlað nýrri þekkingu í sjálfsvígsforvörnum og mögulega komið í veg fyrir sjálfsvíg með því að koma mikilvægum og hjálplegum upplýsingum til skila.
Með aukinni þekkingu hafa leiðbeiningar til fjölmiðla verið gefnar út víðs vegar um heiminn og hafa sumar rannsóknir sýnt fram á að dregið hafi úr sjálfsvígstíðni í kjölfar útgáfu þeirra. Undanfarin ár hafa fleiri rannsóknir skoðað jákvæð áhrif umfjöllunar í fjölmiðlum og gefa þær til kynna að birtar frásagnir af einstaklingum sem fundu leið úr sínum erfiðleikum og sjálfsvígshugsunum, geti dregið úr tíðni sjálfsvígshegðunar.
Papageno áhrif
Ábyrg fjölmiðlaumfjöllun og þau verndandi áhrif sem hún getur haft á tíðni sjálfsvíga hefur verið kallað „Papageno áhrif" eftir Papageno úr Töfraflautu Mozarts, sem íhugar sjálfsvíg en hættir við eftir að hafa komið auga á aðrar uppbyggilegar leiðir.
Myndband: Media and suicide - from Werther to Papageno effects
Dr. Thomas Niederkrotenhaler, prófessor við Háskólann í Vín flytur fyrirlestur á pressukvöldi Blaðamannafélags Íslands 2024.
Sjálfsvíg og fjölmiðlar. Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir. Vísir. 6. september 2023
Viðmið til að draga úr fordómafullri umræðu um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis