24. nóvember 2023
24. nóvember 2023
Réttur til fjölskyldusameiningar
Í tilefni fjölda fyrirspurna varðandi möguleikann á dvalarleyfi á Íslandi fyrir fjölskyldumeðlimi í Palestínu
Dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar eru aðeins veitt nánustu aðstandendum einstaklinga sem búsettir eru hér á landi og hafa rétt til fjölskyldusameiningar.
Útlendingastofnun biðlar til þeirra sem vilja leggja inn umsóknir að kynna sér vel hverjir geta átt rétt á fjölskyldusameiningu áður en umsókn er lögð fram.
Nánustu aðstandendur
Nánustu aðstandendur í skilningi laga um útlendinga eru
börn yngri en 18 ára, í forsjá og á framfæri viðkomandi, og
Rétturinn til fjölskyldusameiningar takmarkast því við kjarnafjölskylduna. Aðrir fjölskyldumeðlimir eða ættingjar, svo sem fullorðin systkini, frænkur, frændur eða foreldrar undir 67 ára aldri, eiga ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Rétt til fjölskyldusameiningar eiga
íslenskir ríkisborgarar,
norrænir ríkisborgarar,
erlendir ríkisborgarar sem hafa ótímabundið dvalarleyfi,
erlendir ríkisborgarar sem hafa tímabundið dvalarleyfi:
sem sérfræðingar,
á grundvelli skorts á vinnuafli,
sem íþróttamenn,
sem sérhæfðir starfsmanns á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings,
sem nemar,
sem makar eða sambúðarmakar,
á grundvelli alþjóðlegrar verndar,
á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða
vegna sérstakra tengsla við landið.
Sérstakar reglur um fylgdarlaus börn
Sérstakar reglur gilda um fylgdarlaus börn sem búa á Íslandi á dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar. Þau ein eiga rétt til fjölskyldusameiningar við eftirtalda aðstandendur:
foreldra (óháð aldri) sem fara með forsjá þeirra og hyggjast búa með barni sínu hér á landi og
systkini yngri en 18 ára, sem eru án maka og búa hjá foreldrunum eða foreldrinu.