Dvalarleyfið er veitt einstaklingi sem er 67 ára eða eldri og á uppkomið barn hér á landi sem hann vill sameinast.
Umsókn
Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.
Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.
Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland
Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Kostnaður
Afgreiðslugjald er 16.000 krónur. Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.
Afgreiðslutími
Hægt er að fylgjast með því hvaða umsóknir hafa verið teknar til vinnslu á síðunni staða mála og afgreiðslutími dvalarleyfa.
Dvöl á landinu meðan sótt er um
Athugaðu hvort þú sért áritunarskyld/ur.
Lög
Dvalarleyfið er veitt á grundvelli 72. greinar laga um útlendinga.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun