Dvalarleyfi fyrir börn er veitt í þeim tilgangi að börn geti sameinast foreldri eða foreldrum sínum á Íslandi. Skilyrði er að barnið sé yngra en 18 ára og í forsjá þess foreldris sem það sækir um sameiningu við.
Foreldri sem er handhafi ótímabundins dvalarleyfis getur sótt um ótímabundið dvalarleyfi fyrir barn sitt, ef það fæddist eftir að foreldrið fékk dvalarleyfi á Íslandi.
Umsókn
Umsóknir þarf að leggja fram í frumriti á pappír.
Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.
Útlendingastofnun (sjá á korti) Dalvegi 18 201 Kópavogi Ísland
Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Kostnaður
Afgreiðslugjald er 16.000 krónur. Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.
Útlendingur undanþeginn áritunarskyldu, sem sækir um dvalarleyfi sem barn, má dvelja á Íslandi meðan umsóknin er til meðferðar hjá Útlendingastofnun, ef umsókn er lögð fram í lögmætri dvöl hér á landi.
Ef umsókn er lögð fram í ólögmætri dvöl kann henni að vera hafnað, nema ríkar sanngirnisástæður mæli gegn því. Þá þarf umsækjandi að leggja fram greinargerð þess efnis samhliða umsókn um dvalarleyfi og óska eftir heimild til dvalar vegna ríkra sanngirnisástæðna.
Umsækjandi um alþjóðlega vernd, sem sækir um dvalarleyfi sem barn, telst hafa áform um að dveljast hér á landi umfram 90 daga. Hann þarf því að leggja fram beiðni um heimild til dvalar ásamt greinargerð varðandi ríkar sanngirnisástæður samhliða umsókn um dvalarleyfi.
Útlendingastofnun vekur athygli á því að það er lögregla sem hefur eftirlit og umsjón með landamærum Íslands. Útlendingur þarf að uppfylla skilyrði fyrir landgöngu svo sem að framvísa skilríkjum, geta sýnt fram á að hafa fullnægjandi framfærslu og að vera að ferðast í tilgangi sem samræmist lögum.
Almennt skal áritunarskyldur útlendingur sækja um dvalarleyfi sem barn áður en hann kemur til Íslands og ekki ferðast hingað á meðan umsóknin er til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Ef umsókn um dvalarleyfi er samþykkt, er gefin út vegabréfsáritun fyrir viðkomandi fyrir tilstilli íslenskra stjórnvalda.
Áritunarskyldur útlendingur má þó leggja fram umsókn um dvalarleyfi sem barn sé hann staddur á Íslandi á grundvelli gildrar vegabréfsáritunar. Þá má hann einnig dvelja á landinu meðan umsóknin er til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Án gildrar vegabréfsáritunar er umsóknin lögð fram í ólögmætri dvöl og kann að vera hafnað, nema ríkar sanngirnisástæður mæli gegn því. Þá þarf umsækjandi að leggja fram greinargerð þess efnis samhliða umsókn um dvalarleyfi og óska eftir heimild til dvalar vegna ríkra sanngirnisástæðna.