Dvalarleyfið er að jafnaði veitt til eins árs í senn en að hámarki í tvö ár.
Ef leyfið er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar við handhafa tímabundins dvalarleyfis getur það þó aldrei gilt lengur en dvalarleyfi þess einstaklings.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.
Réttur til endurnýjunar leyfis
Dvalarleyfið má endurnýja að hámarki í tvö ár, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó getur leyfið aldrei gilt lengur en leyfi þess sem umsækjandi leiðir rétt sinn af.
Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.
Dvalarleyfið má endurnýja þrátt fyrir að barn sé orðið 18 ára en þá er skilyrði að barnið
stundi nám eða störf hér á landi,
sé búsett hjá foreldri og
sé hvorki í hjúskap né sambúð.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.
Réttur til að vinna
Barn sem er með dvalarleyfi í gildi má vinna án atvinnuleyfis til 18 ára aldurs. Eftir að barn hefur náð 18 ára aldri má það ekki vinna nema fá útgefið atvinnuleyfi.
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun