Börn hafa almennt forgang í sinn hverfisskóla. Forsjáraðilar geta þó ávallt sótt um skólavist í öðrum grunnskóla innan sveitarfélagsins, utan sveitarfélagsins eða í sjálfstætt starfandi skóla.
Umsóknarferli
Í umsókninni er valinn sá skóli sem óskað er eftir og greint frá ástæðu flutnings.
Sækja um skólaskipti innan sveitarfélags
Hægt er að óska eftir flutningi milli skóla í sveitarfélaginu þar sem barnið á lögheimili.
Ef barnið er að flytja lögheimili í annað skólahverfi á það forgang í þann hverfisskóla.
Ef sótt er um af öðrum ástæðum er skólavist háð því að pláss sé í skólanum. Reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla má nálgast á vefsvæðum sveitarfélaganna.
Enginn umsóknarfrestur er á umsókn um skólaskipti innan sveitarfélags.
Skólinn sem sótt er um sendir staðfestingu á samþykki eða synjun um skólavist til forsjáraðila.
Barnið er áfram skráð í núverandi skóla þar til umsókn hefur verið samþykkt og flutningur hefst formlega.
Að flytja lögheimili en halda áfram í sama skóla
Barn sem flytur milli skólahverfa innan sveitarfélags þarf ekki að skipta um skóla eða sækja um áframhaldandi skólavist.
Barn er áfram skráð í núverandi skóla þangað til forsjáraðili hefur sótt um skólaskipti og umsókn hefur verið samþykkt.
Sækja um skóla í öðru sveitarfélagi, einkaskóla eða alþjóðaskóla
Greiðsluþáttaka sveitarfélags er forsenda þess að barnið fái skólavist í:
skóla í öðru sveitarfélagi en því sem barnið er með lögheimili
einkaskóla - sem er sjálfstætt starfandi grunnskóli
alþjóðaskóla - sem eru sjálfstætt starfandi grunnskólar sem kenna á ensku og eftir alþjóðlegri námskrá
Ólíkt er milli sveitarfélaga hvort hámark sé á fjölda þeirra barna sem fá samþykkta greiðsluþátttöku.
Umsóknin gildir fyrir eitt skólaár í senn.
Afgreiðsla umsókna vegna greiðsluþátttöku
Umsóknin berst til sveitarfélagsins þar sem barnið á lögheimili sem tekur afstöðu til greiðsluþátttökunnar.
Ef greiðsluþátttöku er synjað fær forsjáraðili svar frá sveitarfélaginu ásamt rökstuðningi.
Ef greiðsluþátttaka er samþykkt er umsókn send áfram með rafrænum hætti til þess skóla sem óskað er eftir.
Afgreiðsla umsóknar um skólavist
Skólinn tekur afstöðu til umsóknarinnar og sendir staðfestingu á samþykki eða synjun til forsjáraðila og sveitarfélagsins þar sem barn á lögheimili.
Kostnaður
Þegar sótt er um einkaskóla eða alþjóðaskóla þurfa forsjáraðilar að gera ráð fyrir kostnaði sem fellur ekki undir greiðsluþátttöku sveitarfélaganna, svo sem skráningargjöldum.
Þjónustuaðili
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu