11. maí 2026
11. maí 2026
Öndunarfærasýkingar - Vikur 17 og 18 2026
Áfram greinast tilfelli inflúensu en greiningum hefur farið fækkandi.

Staðan á Íslandi
Að meðaltali greindust 4−5 tilfelli inflúensu síðastliðnar 3 vikur og þar af voru 4 tilfelli af tegund B. Má því líta svo á að árlegum faraldri sé lokið þennan veturinn.
Í viku 17 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) níu og í viku 18 var fjöldi greindra tilfella þrjú. RSV bólusetningum hefur nú verið hætt þetta tímabil.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir vikur 17 og 18 (20. apríl −3. maí 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.
Inflúensa
Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Toppi var náð í fyrstu viku desembermánaðar 2025. Greiningum inflúensu hefur farið fækkandi síðastliðnar 3 vikur. Í vetur hefur inflúensa af tegund A verið að greinast í miklum meirihluta tilfella en af þeim 5 tilfellum sem greindust síðastliðnar 2 vikur voru 4 tilfelli af tegund B. Tegund B kemur einmitt oft síðar en tegund A en tilfelli eru samt fá. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.
Í viku 17 greindust þrjú tilfelli inflúensu, tvö af tegund B og eitt tegund A af undirtegundinni A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Einn 15−64 ára og tveir 5−14 ára.
Í viku 18 greindist tvö tilfelli inflúensu, eitt af tegund B og eitt tegund A, af undirtegundinni A(H3). Einstaklingar sem greindust voru einn 65 ára og eldri og einn undir 5 ára.
Í viku 17 var enginn einstaklingur inniliggjandi á Landspítala með inflúensu. Í viku 18 var einn einstaklingur inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, 65 ára og eldri. Sjá mynd 2.
Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Einungis átta tilfelli af tegund B hafa greinst hér hingað til á þessu inflúensutímabili.

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 16 árið 2026.
Veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
RS-veirusýkingar
Að meðaltali hafa greinst sjö tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur. Í viku 17 greindust níu tilfelli RSV, sex einstaklingar 65 ára og eldri, einn 15−64 ára, eitt barn 3−4 ára og eitt barn undir 1 árs.
Í viku 18 greindust þrjú tilfelli RSV, tveir einstaklingar 65 ára og eldri og einn 15−64 ára. Sjá mynd 3.
Tveir einstaklingar lágu inni á Landspítala með RSV í viku 17, einn 65 ára og eldri og einn 15−64 ára. Þrír einstaklingar lágu inni á Landspítala með RSV í viku 18, tveir 65 ára og eldri og einn 15−64 ára.

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 18 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis).
Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 17 greindist einn einstaklingur, 15−64 ára. Í viku 18 greindust þrír einstaklingar, einn 15−64 ára og tveir 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 4 tilfelli COVID-19 á viku.
Í viku 17 og 18 var enginn inniliggjandi á Landspítala með COVID-19.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist um þessar mundir mest af rhinoveiru, á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Í viku 17 greindust 15 einstaklingar með rhinoveiru og í viku 18 greindust 28 einstaklingar.
Staðan í Evrópu
Í flestum ríkjum ESB/EES hefur fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma verið í lágmarki undanfarið og fer fækkandi sem bendir til lítillar útbreiðslu öndunarfærasýkinga.
Tíðni inflúensu er lág í nánast öllum löndum, með takmarkaða útbreiðslu og fáar sjúkrahúsainnlagnir í öllum aldurshópum.
RSV er áfram ráðandi meðal öndunarfæraveira, þó virkni fari nú minnkandi eftir að hámarki tímabilsins var náð. Mest virkni greinist hjá börnum á aldrinum 0−4 ára og fólki 60 ára og eldra, en þróunin bendir til fækkunar tilfella í öllum aldurshópum.
Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum í öllum löndum.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Að öllu óbreyttu verða þetta síðustu öndunarfærafréttir þetta flensutímabilið.
Sóttvarnalæknir