Fara beint í efnið

24. apríl 2026

Öndunarfærasýkingar - Vikur 15 og 16 2026

Árlegur inflúensufaraldur heldur áfram og hefur fjöldi greindra tilfella haldist svipaður síðustu vikur. Toppur var í desember 2025 og greindum tilfellum fækkaði upp úr áramótum.

Staðan á Íslandi

Að meðaltali greindust 16 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur.

Í viku 15 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) tíu og í viku 16 var fjöldi greindra tilfella fjögur. RSV bólusetningum hefur nú verið hætt þetta tímabil.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir vikur 15 og 16 (6. −19. apríl 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Toppi var náð í fyrstu viku desembermánaðar 2025 en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1. Fjöldi greininga inflúensu. Vika 16

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Í viku 15 greindust 26 tilfelli inflúensu, öll tegund A og af undirtegundinni A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: 20 einstaklingar 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára og tvö börn undir 5 ára.

Í viku 16 greindust átta tilfelli inflúensu, eitt af tegund B og sjö af tegund A, af undirtegundinni A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru sex 65 ára og eldri og tveir 15−64 ára.

Í viku 15 voru fimm einstaklingar inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, þrír 65 ára og eldri og tveir 15−64 ára. Í viku 16 voru þrír einstaklingar inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, tveir voru 65 ára og eldri og einn 15−64 ára. Sjá mynd 2.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Aðeins fjögur tilfelli af tegund B hafa greinst hér á þessu inflúensutímabili.

Mynd 2. Innlagnir inflúensa. Vika 16

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 16 árið 2026.

Veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

RS-veirusýkingar

Að meðaltali hafa greinst níu tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur. Í viku 15 greindust tíu tilfelli RSV, fimm einstaklingar 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára og eitt barn 1−2 ára.

Í viku 16 greindust fjögur tilfelli RSV, þrír einstaklingar 65 ára og eldri og einn 15−64 ára. Sjá mynd 3.

Sjö einstaklingar lágu inni á Landspítala með RSV í viku 15, þrír 65 ára og eldri og fjórir 15−64 ára. Einn einstaklingur, 15−64 ára, lá inni í viku 16.

Mynd 3. RSV. Vika 16

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 16 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis).

Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 15 greindust níu einstaklingar, einn 65 ára og eldri, sex 15−64 ára og tveir 0−4 ára. Í viku 16 greindust þrír einstaklingar, einn 65 ára og eldri og tveir 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 6 tilfelli COVID-19 á viku.

Einn einstaklingur var inniliggjandi á Landspítala með COVID-19 í viku 15, í aldurshópnum 65 ára og eldri. Í viku 16 var enginn inniliggjandi með COVID-19.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist um þessar mundir mest af rhinoveiru, human metapneumoveiru og kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Í viku 15 greindust 19 með rhinoveiru, fjórir með human metapneumoveiru og 12 með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2. Í viku 16 greindust 17 með rhinoveiru, sjö með human metapneumoveiru og níu með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2.

Staðan í Evrópu

  • Í flestum ríkjum ESB/EES hefur fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma verið í lágmarki undanfarið, sem bendir til lítillar útbreiðslu öndunarfærasýkinga.

  • Tíðni inflúensu er lág í flestum löndum, með takmarkaða útbreiðslu og fáar sjúkrahúsainnlagnir í öllum aldurshópum.

  • Útbreiðsla RSV og fjöldi innlagna er enn mikill, toppnum hefur þó verið náð í flestum löndum. Sjúkrahúsainnlögnum barna undir 5 ára hefur fækkað undanfarnar vikur.

  • Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum í öllum löndum.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Að öllu óbreyttu koma næstu Öndunarfærafréttir út eftir tvær vikur.

Sóttvarnalæknir