20. nóvember 2025
20. nóvember 2025
Öndunarfærasýkingar – Vika 46 árið 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 46 árið 2025 (10. −16. nóvember 2025).

Mynd. Fjöldi greininga inflúensu undanfarna vetur (skjáskot af mælaborði sóttvarnalæknis)
Staðan á Íslandi
Greiningum á inflúensu fjölgar áfram og í viku 46 greindust 64 tilfelli inflúensu. Inflúensan er fyrr á ferðinni en undanfarna vetur en ekki er enn hægt að segja til um hvenær toppi verður náð.
Langflest sýni til rannsóknar koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni. Þó voru hlutfallslega aðeins fleiri jákvæð sýni inflúensu frá heilsugæslunni í þessari viku sem getur endurspeglað aukna dreifingu inflúensu í samfélaginu.
Inflúensa
Í viku 46 greindust 64 tilfelli, inflúensu þar af 16 með inflúensutegund A(pdm09) og 48 með tegund A(H3). Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en 23 einstaklingar voru 65 ára og eldri, 22 voru 15-64 ára, tíu voru 5-14 ára, sex 1-4 ára og þrír undir 1 árs.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
Árviss bólusetning gegn inflúensu er í gangi á heilsugæslustöðvum. Hægt er að bóka tíma á mínum síðum á heilsuveru eða með því að hringja í sína heilsugæslustöð.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar og eru þeir hópar sérstaklega hvattir til að þiggja bólusetningu sem fyrst:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
Öll börn og fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
Barnshafandi.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Fólk í starfstengdri áhættu vegna hugsanlegs samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu.
RS-veirusýkingar
RS-veiru (RSV) faraldur er ekki farinn af stað hérlendis og greindist ekkert tilfelli RSV í viku 46.
Einstofna mótefni gegn RSV (nirsevimab) fyrir yngstu börnin er komið í dreifingu til heilbrigðisstofnana. Nú í vetur býðst mótefnið börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðað í mánaðarlegar lyfjagjafir með palivizumab yfir RSV tímabilið. Börn sem fæðast í vetur, um það bil fram til 31. mars 2026 munu geta fengið mótefni gegn RSV fljótlega eftir fæðingu.
Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu vikur. Í viku 46 greindust sex einstaklingar, fjórir í aldursflokknum 65 ára og eldri, einn 15-64 ára og einn undir 5 ára.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Áfram greinist mest af rhinoveiru (kvefi) af öðrum öndunarfæraveirum á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 20–40 en í viku 46 greindust 16 með rhinoveiru.
Innlagnir á Landspítala
Í viku 46 lágu 17 einstaklingar á Landspítala með inflúensu, átta 65 ára og eldri, þrír 15-64 ára, tveir 5-14 ára, einn 3-4 ára og þrjú börn undir 1 árs. Einn einstaklingar lá inni með COVID-19 í aldurshópnum undir 1 árs.
Staðan í Evrópu
Í ríkjum ESB/EES er fjöldi sjúklinga sem leita til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma enn lítill. Útbreiðsla inflúensu fer vaxandi og virðist hefjast þremur til fjórum vikum fyrr en á síðustu tveimur árum. COVID-19 er stöðugt eða á niðurleið og útbreiðsla RSV hefur aukist síðustu vikur, en er enn lítil. Áhrifin á sjúkrahúsainnlagnir eru enn lítil sem stendur.
Stærsti hópurinn sem greinist með inflúensu eru börn á aldrinum 5-14 ára. Flest greind tilfelli eru af tegundinni inflúensa A, þar sem A(H3) er algengasta undirtegundin.
RS-veirusýkingar greinast aðallega hjá börnum undir fimm ára aldri. Útbreiðsla veirunnar fylgir sambærilegri þróun og síðustu ár.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Þiggja inflúensubólusetningu ef í forgangs- eða áhættuhópi.
Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir