Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. mars 2026

Öndunarfærasýkingar - Vika 11 2026

Árlegur inflúensufaraldur heldur áfram og hefur fjöldi greindra tilfella haldist svipaður síðustu 11 vikur. Toppur var í desember 2025 og greindum tilfellum fækkaði upp úr áramótum og hafa haldist stöðug síðan.

Staðan á Íslandi

Að meðaltali greindust 13 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur. Í viku 11 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) 17 og lágu sex einstaklingar inni á Landspítala með RSV.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 11 (9.−15. mars 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Toppi virðist hafa verið náð í fyrstu viku desembermánaðar 2025 en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1. Fjöldi inflúensugreininga. Vika 11

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Í viku 11 greindust 13 tilfelli inflúensu, eitt tilfelli af tegund B og 12 tilfelli af tegund A, allt tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Átta einstaklingar 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára og eitt barn undir 5 ára. Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Þrjú tilfelli af tegund B hafa greinst hér á þessu tímabili það sem af er vetrar þar af eitt nú í viku 11.

Sjö einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, fimm 65 ára og eldri og tveir 15−64 ára. Sjá mynd 2.

Mynd 2. Inflúensa innlagnir. Vika 11

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 11 árið 2026.

Veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

RS-veirusýkingar

Í viku 11 greindust 17 tilfelli RS-veirusýkingar (RSV), sex einstaklingar 65 ára og eldri, fimm 15−64 ára, eitt barn 3−4 ára, fjögur börn 1−2 ára og eitt barn undir 1 árs. Sjá mynd 3.

Sex einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, þrír 15−64 ára, eitt barn 5−14 ára og tvö börn 1−2 ára. Að meðaltali hafa greinst 18 tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur.

Mynd 3. RSV greiningar. Vika 11

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 11 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis).

Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab.

Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

Þáttaka í RSV bólusetningum er áfram góð og þær munu halda áfram í mars. Áætluð lok bólusetningartímabils er við næstu mánaðamót en faraldsfræði RSV og framboð mótefnis ræður nokkru þar um.

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 11 greindust fimm einstaklingar, tveir 65 ára og eldri, einn 15−64 ára og tveir 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 6 tilfelli COVID-19 á viku. Fjórir einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með COVID-19, tveir í aldurshópnum 65 ára og eldri, einn 15−64 og eitt barn 1−2 ára.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist um þessar mundir mest af human metapneumoveiru og kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Í viku 11 greindust 14 með human metapneumoveiru og 17 með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2.

Staðan í Evrópu

  • Í yfir helming ríkja ESB/EES hefur fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma farið fækkandi, sem bendir til að útbreiðsla öndunarfærasýkinga hafi almennt minnkað.

  • Útbreiðsla inflúensu fer minnkandi. Sjúkrahúsinnlögnum hefur einnig fækkað, en einstaklingar 65 ára og eldri hafa verið stærsti hópur þeirra sem leggjast inn á tímabilinu. Inflúensa A(H3) er enn ríkjandi undirtegundin, en þar á eftir kemur A(H1)pdm09.

  • Útbreiðsla RSV og fjöldi innlagna er enn mikill, og börn undir fimm ára aldri eru áfram stærsti hópur þeirra sem leggjast inn.

  • Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum og fjöldi sjúkrahúsinnlagna er lítill.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Inflúensubólusetningar eru ekki lengur í boði.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir