12. mars 2026
12. mars 2026
Öndunarfærasýkingar - Vika 10 2026
Árlegur inflúensufaraldur heldur áfram. Greindum tilfellum hefur fækkað undanfarið og virðist toppi hafa verið náð.

Staðan á Íslandi
Að meðaltali greindust 13 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur. Í viku 10 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) 13 og lágu sex einstaklingar inni á Landspítala með RSV.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 10 (2.−8. mars 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.
Inflúensa
Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Toppi virðist hafa verið náð í fyrstu viku desembermánaðar 2025 en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.
Í viku 10 greindust 7 tilfelli inflúensu, allt tilfelli af tegund A, þar af eitt af tegund A(H3) og 6 af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Fjórir einstaklingar 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára og eitt barn undir 5 ára. Tveir einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, báðir 65 ára og eldri . Sjá mynd 2.

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 10 árið 2026.
Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Engin tilfelli af tegund B hafa greinst hér síðastliðnar 5 vikur en ekki er útilokað að geti greinst á næstu vikum.
Veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
RS-veirusýkingar
Í viku 10 greindust 13 tilfelli RS-veirusýkingar (RSV), fjórir einstaklingar 65 ára og eldri, þrír 15−64 ára, einn 5−14 ára, eitt barn 3−4 ára, tvö börn 1−2 ára og tvö börn undir 1 árs. Sjá mynd 3.
Sex einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, fjórir 65 ára og eldri, og tvö börn 1−2 ára. Að meðaltali hafa greinst 18 tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur.

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 10 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis).
Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab.
Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.
Þáttaka í RSV bólusetningum er áfram góð og þær munu halda áfram í mars. Áætluð lok bólusetningartímabils er við næstu mánaðamót en faraldsfræði RSV og framboð mótefnis ræður nokkru þar um.
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 10 greindust fimm einstaklingar, tveir 65 ára og eldri, einn 15−64 ára og tveir 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 6 tilfelli COVID-19 á viku. Tveir einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með COVID-19, einn í aldurshópnum 65 ára og eldri og einn 15−64.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist um þessar mundir mest af rhinoveiru (kvefi), human metapneumoveiru og kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 10 greindust 12 með rhinoveiru, 18 með human metapneumoveiru og 21 með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2.
Staðan í Evrópu
Í yfir helming ríkja ESB/EES hefur fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma farið minnkandi, sem bendir til að útbreiðsla öndunarfærasýkinga hafi minnkað.
Útbreiðsla inflúensu er áfram víðtæk en hefur almennt farið minnkandi undanfarnar vikur. Sjúkrahúsinnlögnum hefur einnig fækkað, en einstaklingar 65 ára og eldri hafa verið stærsti hluti innlagna á tímabilinu. Inflúensa A(H3) er enn ríkjandi undirtegundin, en þar á eftir kemur A(H1)pdm09.
Útbreiðsla RSV er enn mikil en hefur byrjað að minnka hægt. Innlagnir virðast hafa náð hámarki, en ekki hjá börnum undir fimm ára aldri, sem eru áfram stærsti hópur þeirra sem leggjast inn.
Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum og fjöldi sjúkrahúsinnlagna er lítill miðað við inflúensu og RSV.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Inflúensubólusetningar eru ekki lengur í boði.
Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir