21. júní 2024
21. júní 2024
Fréttabréf júní 2024
Fréttabréf Stafræns Íslands júní 2024.
Árlegt frost framundan
Við hjá Stafrænu Íslandi óskum þess að sumarið verði hlýtt og sólríkt um allt land þó frost sé framundan hvað útgáfur varðar. Frost í útgáfum þýðir einfaldlega að engin ný verkefni eru gefin út yfir hásumarið. Teymi Stafræns Íslands standa þó vaktina enda Ísland.is samfélagið orðið ansi stórt og að mörgu að huga.
Áhugaverð tölfræði
32 stofnanir hafa flutt vef sinn á Ísland.is og 21 í vinnslu.
Um 160 þúsund hafa sótt Ísland.is appið, þar af eru 28% virkir notendur.
Rúmlega 25 þúsund umsóknir fóru í gegnum Umsóknarkerfi Ísland.is.
245 birtingaraðiiar birta skjöl í Stafræna pósthólfinu þar af 70 stofnanir.
17 þjónustuaðilar birta gögn gegnum Mínar síður Ísland.is
8 stafræn skírteini er að finna á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is appinu.
Þá er unnið er að og úr fjölda útboða á vegum Stafræns Íslands og innleiðing kjarnaþjónustna á borð við Innskráningu fyrir alla, Umsóknarkerfið og Stafræna pósthólfið er í fullum gangi. Stofnanir, framhaldsskólar og nú einnig sveitarfélög undirbúa flutning á vefsíðum sínum sem og aðgengi að gögnum einstaklinga og fyrirtækja gegnum Mínar síður Ísland.is. Tengjum ríkið, árleg ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera, er í undirbúningi og verður dagskrá kynnt síðar í þessum mánuði. Tengjum ríkið verður haldin 26. september og hvetjum áhugasama til að taka daginn frá.
Útboð á vegum Stafræns Íslands
Þjónustukerfi. Útboði á þjónustukerfi fyrir opinbera aðila er lokið, nánari kynning og innleiðing í undirbúningi.
Ráðgjafar. Er í auglýsingu á útboðsvef Ríkiskaupa en frestur til að senda inn tilboð er 12. ágúst. Lesa nánar um ráðgjafaútboðið á Ísland.is.
Vefumsjónarkerfi. Ríkiskaup hefur sent út beiðni um upplýsingar til undirbúnings en stefnt er að útboði næsta vetur.
Rammasamningur Stafræns Íslands. Á dagskrá næsta vetur.
Heilsa á Ísland.is:
Enn bætir í samstarf Embættis landlæknis og Stafræns Íslands en unnið er að því að gera heilsuupplýsingar aðgengilegar á Mínum síðum Ísland.is.
Bólusetningar - í vinnslu
Líffæragjöf - í vinnslu
Upplýsingar um lyf og lyfjaendurnýjun - ekki hafið
Nýjar umsóknir frá Vinnueftirlitinu
Innskráning fyrir alla tekur við af gömlu þjónustunni
Eldri innskráningarþjónusta og umboðskerfi Ísland.is lokar 1. september 2024. Innskráning fyrir alla er aðeins aðgengileg opinberum aðilum en stofnanir og sveitafélög sækja um á Ísland.is. Einkaaðilar sem hafa valið að nota rafræn skilríki til að auðkenna viðskiptavini sína geta meðal annars leitað til eftirfarandi fyrirtækja: Auðkenni, Dokobit, Kenni, Origo, Signet, Taktikal og Vettvangs.
Lesa nánar um lokun eldri innskráningar
Ný sakaskrá
Ný sakaskrá hefur verið opnuð og umsókn um sakavottorð á Ísland.is uppfærð samhliða. Dómsmálaráðuneytið, Ríkissaksóknari og sýslumenn komu að verkefninu í samstarfi við Stafrænt Ísland en það var innviðateymi Deloitte sem þróaði. Umsókn um sakavottorð var uppfærð af Origo.
Yfirlit yfir greiðslur húsnæðisbóta frá HMS
Mínar síður Ísland.is eru í sífelldri þróun en nú hefur yfirlit yfir greiðslur húsnæðisbóta frá HMS bæst við Fjármálaupplýsingar. Undir "Greiðslur" má nú velja Húsnæðisbætur.
Ný umsóknarferli hjá sýslumönnum
Beiðni foreldris með sameiginlega forsjá um breytt lögheimili
Framlenging á greiðslusamningi vegna sekta og/eða sakarkostnaður
Bjóðum Ríkissaksóknara velkominn
Ríkissaksóknari hefur flutt vef sinn á Ísland.is og þar með orðin ein af um 30 stofnunun í Ísland.is samfélaginu.
Meðal verkefna Stafræns Íslands:
Mínar síður Ísland.is
Brautskráningargögn háskóla
Fjármál, hreyfingar á tímabilinu
Greiðsluáætlun Tryggingastofnunar
Starfsleyfi sýslumanna
Tekjuáætlun Tryggingastofnunar
21 vefir vinnslu - dæmi um vefi
Vefur Lögreglunnar
Vefur Rannís
Vefur Sjónstöðvarinnar
Vefur Skipulagsstofnunnar
Vefur Umboðsmanns skuldara
Vefur Vinnumálastofnunar
Í greiningu
Meðmælendakerfi fyrir alþingiskosningar
Umsóknir Ísland.is
Endurnýjun ökuréttinda
Staðfesting á skólavist barns
Stafræn erfðafjárskýrsla
Tilkynning um vinnuslys
Umsókn um breytingu á skólavist barns
Umsókn um dvalarleyfi
Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun
Umsókn um ellilífeyri
Umsókn um háskóla
Umsókn um heimilisuppbót Tryggingastofnunar
Umsóknir Lyfjastofnunar
Umsókn um nafnskírteini
Umsókn um ríkisborgararétt ítrun
Umsókn um sannvottun
Umsókn um starfsleyfi gefin út af Landlækni
Umsókn um tekjuáætlun
Umsókn um veðlánaflutning