Fara beint í efnið

10. júní 2026

Eftirlit með lyfjaávísunum

Embætti landlæknis hefur eftirlit með lyfjaávísunum heilbrigðisstarfsmanna. Eftirlitið byggir annars vegar á frumkvæðisathugunum þar sem lyfjagagnagrunnur embættisins er notaður. Hins vegar er um að ræða eftirlit á grundvelli ábendinga frá til dæmis apótekum, Sjúkratryggingum, Lyfjastofnun og heilbrigðisstarfsmönnum.

Frá 1. janúar 2024 til 31. maí 2026 lauk 64 eftirlitsmálum á lækna og tannlækna vegna lyfjaávísana. Í sumum tilvikum var um fleiri en eitt mál að ræða á sama einstaklinginn. Einu máli lauk með takmörkun á starfsleyfi, 10 málum lauk með áminningu og 24 málum lauk með formlegum tilmælum til úrbóta. Viðurlagaúrræðum var ekki beitt í 25 málum.

Þann 1. júní 2026 voru 43 eftirlitsmál vegna lyfjaávísana í ferli hjá embætti landlæknis.

Embætti landlæknis hvetur til ítrustu varúðar við ávísun lyfja, jafnt ávana- og fíknilyfja t.d. örvandi ADHD-lyfja, ópíóíða, svefnlyfja og slævandi lyfja, sem og annarra lyfja, ekki hvað síst lyfja sem þekkt er að rata mögulega í sölu á svörtum markaði. Má í því samhengi nefna Botox, Ozempic, testósterón og lyf við ristruflunum.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is