Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. mars 2026

Alþjóðlegur svefndagur 13. mars 2026

Alþjóðlegi svefndagurinn er í dag, föstudaginn 13. mars, en hann hefur verið haldinn síðan 2008.

Þema dagsins í ár er Sleep Well, Live Better, eða á íslensku Sofðu vel, það auðveldar lífið! Fólk er hvatt til að forgangsraða svefni fyrir heilsuna.

Góður svefn er öllum nauðsynlegur til að takast á við viðfangsefni daglegs lífs. Svefn hefur meðal annars jákvæð áhrif á ónæmiskerfið, námsgetu og einbeitingu, hjálpar heilanum að festa upplýsingar í minni og er nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska barna.

Æskilegur svefntími

Viðmið um æskilegan svefntíma fyrir hvert aldursskeið hafa verið sett upp í töflu hjá embætti landlæknis, í samræmi við framsetningu National Sleep Foundation. Viðmiðin byggjast á leiðbeiningum fyrir heilbrigða einstaklinga jafnt sem þá sem glíma við svefnraskanir.

Börn og ungmenni ættu að sofa 8 til 14 klukkustundir á nóttu en það fer eftir aldri. Fullorðnir ættu að sofa að jafnaði 7 til 9 klukkustundir á nóttu.

Svefnvenjur og svefnumhverfi

Einnig er mikilvægt að huga að svefnrútínu og hafa ákveðna þætti í huga:

  • Hafa reglu á svefni - vakna og sofna á svipuðum tíma á hverjum degi.

  • Draga úr skjánotkun tveimur klukkustundum fyrir svefn.

  • Slaka á, róa hugann og deyfa lýsingu fyrir svefn.

  • Hafa hæfilega svalt í svefnherberginu og jafnvel opna glugga.

  • Hafa dimmt og hljóðlátt í svefnherberginu.

Aðrir þættir sem stuðla að góðum svefni eru:

  • Að forðast neyslu koffíndrykkja að minnsta kosti 6 klukkustundum fyrir háttatíma. Einnig er ágæt venja að drekka ekki koffíndrykki eftir klukkan 14:00.

  • Regluleg hreyfing yfir daginn bætir svefn, en forðast ætti að hreyfa sig af mikilli ákefð rétt fyrir svefn.

  • Hafa ber í huga að áfengisdrykkja og notkun nikótíns hefur truflandi áhrif á svefn.

  • Forðast ætti að leggja sig á daginn og þá sérstaklega eftir klukkan 14.

Frekari upplýsingar um svefn

Á vef embættis landlæknis má nálgast góðar upplýsingar um svefn, meðal annars veggspjaldið Ráðleggingar sem stuðla að betri svefni. Einnig má finna upplýsingar á Heilsuveru um ýmislegt tengt svefni fyrir alla aldurshópa.

Samkvæmt lýðheilsuvísum embættis landlæknis sefur um fjórðungur fullorðinna á Íslandi of stutt (6 klst. eða minna á nóttu), rúmlega 60% framhaldsskólanema (7 klst. eða minna) og 43,6% unglinga í 8.-10. bekk (7 klst. eða minna). Um þessar mundir stendur yfir rannsókn á hreyfingu, kyrrsetu og svefni fullorðinna á Íslandi og má lesa meira um hana á vef embættisins.

Embætti landlæknis hvetur alla til að huga að svefnvenjum sínum í tilefni dagsins og nota tækifærið til að setja svefn í forgang til frambúðar.

Lýðheilsusvið