Fara beint í efnið

11. nóvember 2020

Sjálfsvíg janúar - júní 2020

Embætti landlæknis hefur gefið út bráðabirgðatölur um sjálfsvíg fyrstu sex mánuði ársins 2020.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis hefur gefið út bráðabirgðatölur um sjálfsvíg fyrstu sex mánuði ársins 2020.

Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð vísvitandi sjálfsskaði (ICD-10 kóðar: X60-X84). Skráningu dánarmeina er ekki hægt að ljúka fyrr en öll gögn og krufningaskýrslur frá réttarmeinafræðideild Landspítala hafa borist embætti landlæknis. Ferlið getur því verið nokkuð tímafrekt. Nú er hins vegar svo komið að gögn hafa borist fyrir fyrri hluta ársins 2020 og hafa bráðabirgðatölur um sjálfsvíg því verið gefnar út.

Fjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði ársins 2020 var 18, eða 4,9 á hverja 100.000 íbúa. Þessar tölur samræmast tölum fyrri ára en meðalfjöldi sjálfsvíga fyrstu 6 mánuði áranna 2015-2019 var 18, eða 5,2 á hverja 100.000 íbúa. Ekki er heldur mikil breyting sé litið til tíu ára meðaltals áranna 2010-2019.

Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg

Vegna fámennis þjóðarinnar þá geta litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni. Talsvert miklar sveiflur þurfa að verða til þess að hægt sé að staðhæfa að um marktæka breytingu sé að ræða. Því er mikilvægt að túlka ekki nokkurra mánaða bráðabirgðatölur sem aukningu eða samdrátt á tíðni sjálfsvíga. Embætti landlæknis vinnur, ásamt fjölda samstarfsaðila, að innleiðingu aðgerðaáætlunar til að fækka sjálfsvígum á Íslandi en þar er um að ræða fjölþættar aðgerðir.

Embætti landlæknis hefur gefið út leiðbeiningar til fjölmiðla um ábyrga umfjöllun sjálfsvíga. Ábyrg og fræðandi umfjöllun um sjálfsvígshegðun þar sem einblínt er á batasögur og hjálparúrræði geta haft þau áhrif að einstaklingar í vanlíðan leiti sér hjálpar. Þessi áhrif eru kölluð „Papageno áhrif", eftir Papageno úr Töfraflautu Mozarts, sem íhugar sjálfsvíg en hættir við eftir að hafa verið bent á aðrar uppbyggilegar leiðir.

Það er hjálp til staðar

Mikilvægt er að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is, eða við ráðgjafa í síma Píeta samtakanna s.552-2218. Þessi úrræði eru kynnt nánar í þessu myndbandi en þau eru einstaklingum að kostnaðarlausu og opin allan sólarhringinn.

Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, netfang: hildurg@landlaeknir.is, verkefnastjóri lýðheilsusviði 
Hildur Björk Sigbjörnsdóttir, verkefnastjóri heilbrigðisupplýsingasviði