Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun: Örorka frá 1. september 2025

Hvers vegna lækka greiðslur mínar við yfirfærslu í nýtt örorkulífeyriskerfi?

Vegna þess að ef þú ert með greiðslur úr lífeyrissjóðum umfram frítekjumörk hafa þær áhrif á útreikning örorkulífeyris í nýju kerfi til lækkunar. Það getur leitt til þess að greiðslur lækki miðað við núverandi greiðslur eða falla niður. Þetta á nær eingöngu við um einstaklinga sem eru með tiltölulega háar greiðslur úr lífeyrissjóði. Viðbótarlífeyrissparnaður hefur þó ekki áhrif á upphæðir örorkulífeyris. 

Einnig getur verið að heildargreiðslur þínar lækki þar sem ekki er lengur réttur á greiðslu uppbóta vegna kostnaðar. Tekjumörk til greiðslu uppbóta vegna kostnaðar eru 327.004 kr. á mánuði. Áður höfðu sérstök uppbót á lífeyri vegna framfærslu og aldursviðbót frá TR ekki áhrif á uppbætur vegna kostnaðar til lækkunar en nú hafa allar tekjutengdar greiðslur frá TR áhrif á uppbæturnar til lækkunar samkvæmt reglugerð um heimilisuppbót og uppbætur vegna kostnaðar.