Tryggingastofnun: Örorkulífeyrir
Hvaða áhrif hafa greiðslur úr lífeyrissjóði á greiðslur örorkulífeyris?
Greiðslur úr lífeyrissjóðum umfram frítekjumörk hafa áhrif á útreikning örorkulífeyris til lækkunar. Þetta á nær eingöngu við um einstaklinga sem eru með tiltölulega háar greiðslur úr lífeyrissjóði.
Viðbótarlífeyrissparnaður hefur þó ekki áhrif á upphæðir örorkulífeyris.