Tryggingastofnun: Örorkulífeyrir
Er hlutaörorkulífeyrir bara greiddur þeim sem eru í atvinnuleit og fá virknistyrk frá Vinnumálastofnun?
Nei, ekki er gerð krafa um að einstaklingur sem hefur fengið samþykktan hlutaörorkulífeyri sé með atvinnu, í atvinnuleit eða sé með virknistyrk.
Niðurstaða samþætts sérfræðimats segir til um hvort samþykktur sé örorkulífeyrir eða hlutaörorkulífeyrir.
Hlutaörorkulífeyrir er fyrir einstaklinga sem eru metnir með 26 - 50% getu til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar. Þeir þurfa ekki endilega að vera í vinnu eða atvinnuleit.
Þau sem eiga rétt á hlutaörorkulífeyri geta fengið greiddan virknistyrk frá Vinnumálastofnun í allt að 24 mánuði á meðan einstaklingur er í virkri atvinnuleit með aðstoð Vinnumálastofnunar. Samanlögð fjárhæð hlutaörorkulífeyris og virknistyrks nemur samtals fjárhæð fulls örorkulífeyris. Sótt er um virknistyrk hjá Vinnumálastofnun. Hann er ekki tekjutengdur.