Tryggingastofnun: Örorka frá 1. september 2025
Ég er með mat í gildi 31. ágúst 2025 og á rétt á örorkulífeyri í nýju kerfi. Gæti hlutaörorkulífeyrir komið betur út fyrir mig?
Best er fyrir viðkomandi að kanna útreikninga með því að fara í reiknivél lífeyris hér. Þar getur þú reiknað út greiðslur annars vegar með hlutaörorkulífeyri og hins vegar með örorkulífeyri.
Einstaklingar sem fengu samþykkt örorkumat fyrir 1. september 2025 geta óskað eftir að fara á hlutaörorku í nýju kerfi. Hægt að senda tölvupóst á ororka@tr.is og óska eftir leiðbeiningum varðandi breytingu á greiðslum.