Tryggingastofnun: Örorkulífeyrir
Ég fékk samþykkt varanlegt örorkumat fyrir 1. september 2025. Hvernig sæki ég um að komast á hlutaörorkulífeyri?
Einstaklingar sem fengu samþykkt varanlegt örorkumat fyrir 1. September 2025 geta óskað eftir að fara á hlutaörorku í nýju kerfi. Hægt er að sækja um yfirfærslu á hlutaörorkulífeyri á Mínum síðum TR en gott er að skoða vel hvort kemur betur út að vera áfram með greiðslur örorkulífeyris eða færast yfir á hlutaörorku.
Við mælum með að reikna í reiknivél TR bæði örorkulífeyri og hlutaörorkulífeyri út frá þínum forsendum.