Tryggingastofnun: Örorka frá 1. september 2025
Breytast greiðslur mínar í nýju kerfi?
Langflestir sem sem fengu greiddan örorku- eða endurhæfingarlífeyri samkvæmt eldra kerfi fá hærri greiðslur í nýju kerfi eftir 1. september 2025.
Rétt er að benda á að mismunandi þættir hafa áhrif á greiðslur hvers og eins, til dæmis aldur, búseta, hvort þú búir ein/n, eigir börn, hvaða tekjur þú hefur og fleira. Tryggingastofnun mun veita upplýsingar um greiðslur til hvers og eins um leið og slíkt er mögulegt.
Í reiknivél örorulífeyris, sjúkra- og endurhæfingargreiðslna er mögulegt að reikna út greiðslur í nýju kerfi.