Tryggingastofnun: Fagaðilar - breytingar á örorku- og endurhæfingargreiðslum
Hvaða áhrif hafa greiðslur úr lífeyrissjóði á sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í nýju kerfi?
Greiðslur úr lífeyrissjóðum umfram frítekjumörk munu hafa áhrif á útreikning sjúkra- og endurhæfingagreiðsla í nýju kerfi til lækkunar. Það getur leitt til þess að greiðslur lækki miðað við núverandi greiðslur. Þetta á nær eingöngu við um einstaklinga sem eru með tiltölulega háar greiðslur úr lífeyrissjóði.
Viðbótarlífeyrissparnaður hefur þó ekki áhrif á upphæðir sjúkra- og endurhæfingargreiðslna.