Fara beint í efnið

Tryggingastofnun: Fagaðilar - breytingar á örorku- og endurhæfingargreiðslum

Hverjir hafa aðgang að þjónustugáttinni?

Þjónustuaðilar eru aðilar sem veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu. Meðferðar- eða endurhæfingaraðilar eru aðilar sem veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu í umboði þjónustuaðila eða Tryggingastofnunar.

Heilbrigðismenntað starfsfólk þjónustuaðila og meðferðar- eða endurhæfingaraðila geta útbúið endurhæfingaráætlanir eða staðfestingar á:

  • viðurkenndri meðferð,

  • bið á viðurkenndri meðferð,

    eða

  • því að heilsubrestur komi í veg fyrir fyrirhugaða meðferð eða endurhæfingu.

Þjónustuaðilar eru aðilar sem veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu. Þeir eru ásamt Tryggingastofnun (TR):

  • Félagsþjónustur sveitarfélaga

  • Vinnumálastofnun

  • Heilbrigðisstofnanir

  • VIRK starfsendurhæfingarsjóður

Meðferðar- eða endurhæfingaraðilar eru aðilar sem veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu í umboði þjónustuaðila eða TR og eru eftirfarandi:

  • Krýsuvík

  • Þraut

  • Ljósið

  • Hæfi

  • Grænahlíð

  • Hlaðgerðarkot

  • Kjarkur

  • Hugarafl

  • Starfsendurhæfing Suðurlands

  • Starfsendurhæfing Vesturlands

  • Starfsendurhæfing Norðurlands

  • Starfsendurhæfing Vestfjarða

  • Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar

  • Hringsjá