Fara beint í efnið

Tryggingastofnun: Fagaðilar - breytingar á örorku- og endurhæfingargreiðslum

Hvernig flyst fólk úr endurhæfingu yfir í örorku eða hlutaörorku?

Umsækjendur sækja sérstaklega um örorku og fara þá í samþætt sérfræðimat. Niðurstaða matsins úrskurðar hvort umsækjendur hljóti örorkulífeyri eða hlutaörorku. Ef geta til virkni á vinnumarkaði er metin 0 - 25% skapast réttur til örorkulífeyris, en ef geta til virkni á vinnumarkaði er metin 26 – 50% skapast réttur til hlutaörorkulífeyris. Umsókn er synjað ef geta til virkni á vinnumarkaði er metin meiri en 50% eða ef endurhæfing eða viðurkennd meðferð telst ekki fullreynd.