Fara beint í efnið

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun: Húsnæðisbætur og leigumál

Hvenær má leigusali segja upp ótímabundnum samningi?

Leigusali getur sagt upp ótímabundnum samningi í eftirtöldum tilfellum:

  • Ef hið leigða húsnæði er í sama húsi og leigusali býr í sjálfur.

  • Ef íbúð er leigð með húsgögnum að öllu eða verulegu leyti nema um sé að ræða leigusala sem leigir út samtals þrjár eða fleiri sérgreindar íbúðir og/eða herbergi.

  • Ef leigusali tekur húsnæðið til eigin nota.

  • Ef leigusali ráðstafar eða hyggst ráðstafa húsnæðinu til að minnsta kosti eins árs til skyldmenna í beinan legg, kjörbarna, fósturbarna, systkina, systkinabarna eða tengdaforeldra.

  • Ef leigusali hyggst selja húsnæðið á næstu sex mánuðum eftir lok leigutímans. Er aðilum þá heimilt, þrátt fyrir önnur ákvæði laga þessara, að semja um lok leigutíma með ákveðnum skilyrðum og rýmingu þegar húsnæðið verður afhent nýjum eiganda.

  • Ef fyrirhugaðar eru verulegar viðgerðir, endurbætur eða breytingar á húsnæðinu á næstu sex mánuðum frá lokum leigutímans sem gera húsnæðið óíbúðarhæft um að minnsta kosti tveggja mánaða skeið að mati úttektaraðila. Er aðilum þá heimilt, þrátt fyrir önnur ákvæði laga þessara, að semja um lok leigutíma með ákveðnum skilyrðum og rýmingu þegar viðgerðir, endurbætur eða breytingar hefjast.

  • Ef leigjandi er starfsmaður leigusala og hefur fengið afnot af húsnæði eða hluta húsnæðis til íbúðar vegna þess starfs og leigjandi lætur af störfum að eigin ósk, honum er sagt upp eða vikið úr starfi eða fyrir fram umsömdum ráðningartíma lýkur.

  • Ef leigjandi hefur á leigutímanum gerst sekur um vanefndir eða brot sem varðað gátu riftun.

  • Ef leigjandi hefur á annan hátt vanefnt skyldur sínar á þann veg, eða sýnt af sér slíka háttsemi, að eðlilegt megi telja að leigusali vilji ekki leigja honum áfram eða að veigamiklar ástæður að öðru leyti réttlæti uppsögn samningsins.

  • Ef sanngjarnt mat á hagsmunum beggja aðila og aðstæðum öllum réttlætir að öðru leyti uppsögn ótímabundins leigusamnings.

  • Ef leigusali er lögaðili sem ekki er rekinn í hagnaðarskyni og leigjandi uppfyllir ekki lengur lögmæt og málefnaleg skilyrði leigusala fyrir leigu húsnæðis eða veitir ekki nauðsynlegar upplýsingar svo unnt sé að staðreyna hvort hann uppfylli skilyrðin, enda komi fram í leigusamningi að réttur hans til hins leigða sé bundinn umræddu skilyrði.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Hafðu samband

Netfang: hms@hms.is

Sími: 440 6400

Afgreiðslu­tími

Mánudaga til fimmtudaga
8:30 til 15:30

Föstudaga
9:00 til 14:00

Heim­il­is­fang

Borgartúni 21, 105 Reykjavík

Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki

Hafnarstræti 107, 600 Akureyri

kennitala: 581219-1480