Húsnæðis- og mannvirkjastofnun: Húsnæðisbætur og leigumál
Er hægt að endurreikna lokauppgjör?
Já, umsækjandi getur óskað eftir endurreikningi ef hann telur að nýjar upplýsingar og/eða gögn séu til staðar sem sýni fram á að lokauppgjör hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum, eða leitt til efnislega rangrar niðurstöðu.
Beiðni um endurupptöku skal senda á hms@hms.is.
Taka skal fram þær upplýsingar sem umsækjandi telur að hafi áhrif á ákvörðun og senda gögn eftir því sem við á því til rökstuðnings.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?