Húsnæðis- og mannvirkjastofnun: Húsnæðisbætur og leigumál
Get ég skuldað húsnæðisbætur?
Já, samkvæmt lögum ber umsækjanda að endurgreiða ofgreidda fjárhæð húsnæðisbóta. Þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir liðins árs liggja fyrir samkvæmt skattframtali eru húsnæðisbætur endurreiknaðar á grundvelli þeirra upplýsinga.
Leiði endurreikningur til breytinga á fjárhæð bóta skal leiðrétta þær.
Lokauppgjör fer fram þegar staðfest skattframtal liggur fyrir og getur því myndast skuld ef raunverulegar eignir eða tekjur þ.m.t. fjármagnstekjur hafa verið hærri á árinu en en raunútreikningur byggði á.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?