Húsnæðis- og mannvirkjastofnun: Húsnæðisbætur og leigumál
Eru húsnæðisbætur greiddar afturvirkt?
Húsnæðisbætur eru ekki greiddar afturvirkt.
Fyrsti greiðsludagur er fyrsta dag næsta mánaðar eftir að umsókn er samþykkt.
Það er mikilvægt að sækja um sem fyrst þótt leigusamningur sé ekki tilbúinn þar sem húsnæðisbætur eru greiddar í fyrsta lagi mánuðinn eftir umsóknarmánuð.
Dæmi:
Þú sækir um í janúar og leigusamningur er frá 1. janúar. Þú færð greiddar bætur 1. febrúar fyrir janúarmánuð.
Þú sækir um í janúar og leigusamningurinn er frá 1. desember. Þú færð greiddar bætur 1. febrúar, en eingöngu fyrir janúarmánuð.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?