Fara beint í efnið

Svanurinn

Sækja um Svansleyfi

Fyrirtæki og rekstraraðilar geta sótt um Svansleyfi fyrir vörur og þjónustu sem falla undir viðmið Svansins. Viðmiðin eru mismunandi eftir vöruflokkum og þjónustustarfsemi og eru endurskoðuð reglulega með það að markmiði að draga enn frekar úr umhverfisáhrifum.

Til að fá Svansleyfi þarf umsækjandi að uppfylla öll viðeigandi skilyrði í viðmiðum fyrir viðkomandi vöru- eða þjónustuflokk. Umsóknarferlið felur meðal annars í sér að umsækjandi leggur fram nauðsynleg gögn og upplýsingar sem sýna fram á að kröfur viðmiðanna séu uppfylltar. Umhverfis- og orkustofnun metur gögnin og sannreynir áður en Svansleyfi er veitt.

Áður en umsókn er send inn er mikilvægt að kynna sér hvaða viðmið gilda fyrir viðkomandi vöru eða þjónustu og hvaða gögn þarf að leggja fram.

Hverjir geta sótt um Svansleyfi?
Fyrirtæki, stofnanir og rekstraraðilar sem bjóða vöru eða þjónustu sem fellur undir gildandi viðmið Svansins.

Hvernig sæki ég um?

  1. Finndu viðeigandi viðmið fyrir vöruna, þjónustuna eða bygginguna.

  2. Kynntu þér kröfur og gögn sem þarf að leggja fram.

  3. Sendu inn umsókn um Svansleyfi.

  4. Sérfræðingur Svansins hefur samband og leiðbeinir um næstu skref.

  5. Þegar sýnt hefur verið fram á að allar kröfur séu uppfylltar og úttekt hefur farið fram er Svansleyfi veitt.

Í umsóknarforminu eru meðal annars veittar upplýsingar um umsækjanda, tengiliði vegna umsóknarinnar og þá vöru eða þjónustu sem sótt er um Svansleyfi fyrir. Umsækjandi ber ábyrgð á því að veittar upplýsingar séu réttar og að nauðsynleg gögn fylgi umsókn.

Almennar kröfur til umsækjenda

  • Að hafa kynnt sér reglugerð um umhverfismerki

  • Að hafa kynnt sér reglur um notkun merkis Svansins

  • Að hafa kynnt sér gildandi viðmið Svansins fyrir viðkomandi vöruflokk

  • Að fyrirtækið uppfylli gildandi lög og reglur varðandi ytra og innra umhverfi við framleiðslu, meðhöndlun og sölu vörunnar

  • Að fyrirtækið uppfylli gildandi lög og reglur á þeim mörkuðum þar sem varan er markaðssett

  • Að fyrirtækið fylgi lögum og reglum varðandi vinnuvernd og öryggi á vinnustöðum

  • Að fyrirtækið tryggi starfsréttindi og kjör í takt við gildandi kjarasamninga

  • Að fyrirtækið skuldbindi sig til greiða tilskilin gjöld og annan kostnað vegna umsóknar, skoðunar og prófana í samræmi við gjaldskrá Svansins

  • Að fyrirtækið muni tilkynna Umhverfis- og orkustofnun án tafar um breytingar á vöru, framleiðslu eða markaðssetningu sem geta haft áhrif á gildandi leyfi

  • Að merki Svansins verði eingöngu notað á gildistíma Svansleyfis

  • Að bókhald fyrirtækisins sé endurskoðað af löggiltum endurskoðanda

  • Að fyrirtækið sé skuldlaust, þ.e.a.s. skuldar ekki skattgreiðslur eða önnur opinber gjöld sem fallin eru á gjalddaga

Umsókn um Svansleyfi - vörur

Umsókn um Svansleyfi - þjónusta

Umsókn um Svansleyfi - byggingar