Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Umhverfismál, Norræn samvinna

Undirritunardagur

30. september 2025

Útgáfudagur

1. október 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1032/2025

30. september 2025

GJALDSKRÁ

fyrir norræna umhverfismerkið, Svaninn.

1. gr. Gildissvið.

Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald vegna notkunar á norræna umhverfismerkinu Svaninum skv. reglugerð um umhverfismerki nr. 160/2017.

2. gr. Umsóknargjald og endurnýjunargjald.

Umhverfis- og orkustofnun innheimtir umsóknargjald og endurnýjunargjald fyrir leyfi til notkunar á norræna umhverfismerkinu Svaninum skv. 22. gr. reglugerðar nr. 160/2017. Gjöldin eru eftirfarandi:

  1. Umsóknargjald fyrir lítil fyrirtæki 215.000 kr. Gjaldið gildir fyrir fyrirtæki með færri en 10 starfsmenn/ársverk, og heildarveltu undir 200 m. kr. og viðburði þar sem gestafjöldi er undir 300, sbr. þó liði d-i.
  2. Umsóknargjald fyrir önnur fyrirtæki en skv. a-lið 430.000 kr., sbr. þó liði d-i.
  3. Endurnýjunargjald 215.000 kr. en 107.500 kr. fyrir lítil fyrirtæki skv. a-lið hafi fyrirtækið sótt um endurnýjun leyfis vegna nýrra viðmiða áður en leyfi þess rennur út, sbr. þó h- og i-lið.
  4. Fyrir nýbyggingar, endurbætur á húsnæði og rekstur og viðhald bygginga er umsóknargjald 525.000 kr., sbr. þó liði e og f.
  5. Fyrir nýbyggingar og endurbætur er að auki greitt 680 kr. fyrir hvern fermetra hússins upp að 20.000 m² og umfram það 340 kr. fyrir hvern fermetra. Innifalið í gjaldinu er ein úttektarheimsókn. Greitt er sérstaklega fyrir aðrar úttektir, 76.000 kr. fyrir hverja úttektarheimsókn. Fyrirtæki sem hlotið hefur leyfi innan núgildandi útgáfu viðmiðunarreglna fyrir viðkomandi vöruflokk (nýbyggingar eða endurbætur) greiðir aðeins umsóknargjald fyrir fyrsta verkefnið í viðmiðaflokknum en þar eftir aðeins fermetragjald.
  6. Fyrir rekstur og viðhald bygginga nær hvert umsóknar- og endurnýjunargjald til 5 bygginga. Ef sótt er um fyrir rekstur og viðhald Svansvottaðra bygginga er gefin 50% afsláttur af umsóknargjaldi.
  7. Fyrir viðburði er að auki greitt 60 kr. fyrir hvern gest. Fyrir hvern gest umfram 5.000 eru greiddar 30 kr. Fyrirtæki sem hlotið hefur leyfi innan núgildandi útgáfu viðmiðunarreglna er gefinn 50% afsláttur af umsóknargjaldi. Einnig er gefinn 50% afsláttur sé viðburður haldinn í Svansvottuðu ráðstefnurými eða hóteli.
  8. Ef sótt er um fleiri en 4 vörur eða dagvöruverslanir undir einni umsókn er innheimt gjald fyrir hverja vöru eða verslun umfram það að upphæð 65.000 kr., sbr. þó i-lið.
  9. Ef sótt er um fleiri en 8 vörur undir vöruflokknum málning er innheimt gjald fyrir hverja vöru umfram það að upphæð 50.000 kr.

Umsóknar- og endurnýjunargjald greiðist eftir að umsókn hefur verið lögð inn, sbr. 11. gr. reglugerðar nr. 160/2017. Heimilt er að innheimta viðbótargjald vegna kostnaðar við nauðsynlegar prófanir og sannprófanir, sbr. 22. gr. reglugerðar nr. 160/2017. Kostnaður vegna nauðsynlegra úttekta sem fram fara á öðrum Norðurlöndum er gjaldfrjáls en innheimt er vegna slíkra úttekta sem fram fara utan Norðurlandanna.

3. gr. Almennt árgjald fyrir vörur.

Umhverfis- og orkustofnun innheimtir árgjald vegna notkunar norræna umhverfismerkisins á Norðurlöndum fyrir vörur hafi leyfi verið veitt á Íslandi, skv. 22. gr. reglugerðar nr. 160/2017. Fjárhæð gjaldsins tekur mið af kostnaði við eftirlit, kynningu, fræðslu og rekstur merkisins ásamt þróun viðmiðunarreglna.

Árgjald vöru sem ber norræna umhverfismerkið er:

  1. 0,3% af veltu vörunnar á ári, sbr. þó b-lið.
  2. 0,15% af veltu varanna byggingarplötur, prent- og ljósritunarpappír, brennslukubbar (pellets) og eldsneyti á ári allt að 3.300.000.000 kr. en 0,05% umfram þá fjárhæð.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er hámarksárgjald fyrir vörur 16.500.000 kr. og lágmarksgjald fyrir vörur er 325.000 kr.

4. gr. Sérstakt árgjald fyrir vörur sem eingöngu eru seldar á Íslandi.

Þrátt fyrir 3. gr. er lágmarksárgjald 75.000 kr. og hámarksárgjald 2.700.000 kr. ef varan er eingöngu markaðssett á Íslandi. Hámarksárgjald fyrir fyrirtæki með fleiri en eina Svansmerkta vöru er 5.400.000 kr. ef varan er eingöngu markaðssett á Íslandi.

5. gr. Árgjald fyrir þjónustu.

Umhverfis- og orkustofnun innheimtir árgjald vegna notkunar á norræna umhverfismerkinu Svaninum fyrir þjónustu hafi leyfi verið veitt á Íslandi, skv. 22. gr. reglugerðar nr. 160/2017. Fjárhæð gjaldsins tekur mið af kostnaði við eftirlit, kynningu, fræðslu og rekstur merkisins ásamt þróun viðmiðunarreglna. Þjónustu sem ekki er boðin fram á samkeppnismarkaði (svo sem innanhúss mötuneyti eða þvottahús) er gefinn 50% afsláttur af árgjaldi, þó gildir lágmarksgjald í samræmi við eftirfarandi liði a-d.

Árgjald þjónustu sem ber norræna umhverfismerkið er fyrir:

  1. Hótel, veitingarekstur, ráðstefnurými, ræstiþjónustu, efnalaugar, bílaþvottastöðvar og aðra sambærilega flokka:
    0,15% af veltu ársins upp að 247.500.000 kr. en 0,05% af veltu umfram þá fjárhæð. Lágmarksgjald fyrir hvert fyrirtæki er 75.000 kr. og hámarksgjald fyrir hvert fyrirtæki er 600.000 kr.
  2. Dagvöruverslanir:
    250.000 kr. fyrir hverja verslun allt að 5 verslunum. Fyrir hverja verslun, þegar fjöldi þeirra er 6-14, er greitt 125.000 kr. fyrir hverja verslun. Fyrir hverja verslun umfram 15 verslanir er greitt 67.500 kr.
  3. Prentsmiðjur:
    245 kr. á hvert tonn vegna innkaupa á pappír að 2.000 tonnum. 82 kr. á hvert tonn vegna innkaupa á pappír umfram 2.000 tonn. Lágmarksgjald fyrir hverja prentsmiðju er 270.000 kr. og hámarksárgjald fyrir hverja prentsmiðju er 2.475.000 kr.
  4. Rekstur og viðhald bygginga:
    Fermetrar Árgjald
    0-2.500 m² 150.000 kr.
    2.501-5.000 m² 200.000 kr.
    5.001-10.000 m² 400.000 kr.
    10.001 m²+ 500.000 kr.

6. gr. Breyting á leyfi.

Umhverfis- og orkustofnun innheimtir gjald fyrir breytingu á leyfi til notkunar á norræna umhverfismerkinu Svaninum. Minniháttar breyting, s.s. að breyta uppskrift vöru er innifalin í árgjaldi. Gjald fyrir miðlungs breytingu, s.s. að bæta við allt að 2 vörum í vörulínu eða taka upp nýja þjónustueiningu, er 100.000 kr. Gjald fyrir verulega breytingu, s.s. að bæta við þremur eða fleiri vörum í vörulínu eða bæta við fleiri en einni nýrri þjónustueiningu, er 200.000 kr. Þegar um er að ræða breytingu á leyfi fyrir nýbyggingar og endurbætur er gjaldið 100.000 kr.

7. gr. Greiðsla reikninga.

Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir útgáfu reiknings. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af innheimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.

8. gr. Gildistaka.

Gjaldskrá þessi sem sett er samkvæmt heimild í 35. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir norræna umhverfismerkið, Svaninn, nr. 1445/2023.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 30. september 2025.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Ólafur Darri Andrason.

B deild — Útgáfudagur: 1. október 2025

Tengd mál