Fara beint í efnið

Svanurinn

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem hefur það sem meginmarkmið að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti. Á Íslandi er Umhverfis- og orkustofnun umsjónaraðili Svansins og vinnur náið með skrifstofum Svansins á öllum Norðurlöndunum.

Svansvottun byggist á heildstæðu mati á umhverfisáhrifum vöru eða þjónustu og tekur meðal annars á efnanotkun, losun gróðurhúsalofttegunda, úrgangi, orkunotkun og gæðum.

Fyrirtæki og rekstraraðilar geta sótt um Svansleyfi fyrir vörur og þjónustu sem falla undir viðmið Svansins. Viðmiðin eru mismunandi eftir vöruflokkum og þjónustustarfsemi og eru endurskoðuð reglulega með það að markmiði að draga enn frekar úr umhverfisáhrifum.