Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 20. mars 2025

Stofnreglugerð

1540/2024

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2024 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga um tryggingagjald, nr. 113/1990.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2024 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2024.

Samkvæmt 19. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2024 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2023 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2023 samtals kr. 2.000.076.334.096 og er áætlað fjárframlag ársins 2023 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 7.150.248.086 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 45.940.344 0,643%
Birta lífeyrissjóður 240.999.112 3,371%
Eftirlaunasjóður FÍA 14.765.262 0,207%
Festa lífeyrissjóður 909.511.557 12,720%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 141.324.653 1,977%
Gildi lífeyrissjóður 2.805.471.339 39,236%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 67.212.332 0,940%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 31.496.843 0,441%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 10.475.113 0,147%
Lífeyrissjóður bænda 17.839.869 0,250%
Lífeyrissjóður Rangæinga 53.698.363 0,751%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 3.503.622 0,049%
Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf. 3.146.109 0,044%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 26.634.674 0,373%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 461.798.773 6,459%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 124.521.570 1,742%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 421.435.622 5,894%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 125.486.854 1,755%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-B 12.298.427 0,172%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 2.037.821 0,029%
Lífsverk lífeyrissjóður 19.412.924 0,272%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 606.805.804 8,487%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 127.989.441 1,790%
Stapi lífeyrissjóður 771.654.773 10,792%
SL lífeyrissjóður 104.786.886 1,466%

Samtals


7.150.248.086


100%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2025, í október 2025, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2024 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2023.

4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2023.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2022 er kr. 1.954.665.825.653. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2022 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1406/2023, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2023 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2022 er kr. 78.357.839.880 til lækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2023 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2023, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1406/2023, nemur því samtals kr. 254.662.980 til lækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2024 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 1.536.891 0,604%
Birta lífeyrissjóður 8.766.773 3,443%
Eftirlaunasjóður FÍA 426.560 0,168%
Brú lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L060EsRb 42.019 0,017%
Brú lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 159.164 0,063%
Festa lífeyrissjóður 31.980.577 12,558%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 4.794.031 1,883%
Gildi lífeyrissjóður 100.621.163 39,512%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 2.351.813 0,924%
Brú lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 63.666 0,025%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 1.078.498 0,424%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 460.940 0,181%
Lífeyrissjóður bænda 752.529 0,296%
Brú lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 16.553 0,007%
Lífeyrissjóður Rangæinga 1.813.200 0,712%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 157.891 0,062%
Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf. 140.065 0,055%
Brú lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 34.380 0,014%
Brú lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L400LK 140.065 0,055%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 1.081.044 0,425%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 16.661.325 6,543%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 5.239.691 2,058%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 11.617.725 4,562%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 4.739.278 1,861%
Brú lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 115.872 0,046%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 92.952 0,037%
Lífsverk lífeyrissjóður 701.597 0,276%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 21.342.031 8,381%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 4.605.580 1,809%
Stapi lífeyrissjóður 29.179.284 11,458%
SL lífeyrissjóður 3.949.823 1,551%

Samtals


254.662.980


100%

5. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð sama efnis nr. 1406/2023.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 3. desember 2024.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.