Prentað þann 6. mars 2026
1410/2025
Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2025 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.
1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.
Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árleglu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga um tryggingagjald, nr. 113/1990.
Í samræmi við ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2025 nema 0,193% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.
2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.
Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:
- Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorku-lífeyris umfram 2% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
- Reikna skal örorkuskuldbindingu hvers sjóðs umfram meðaltal skv. 1. tölul. og ákvarðar sú stærð hlutfall lífeyrissjóðs í framlagi hvers árs.
3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2025.
Samkvæmt 19. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2025 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2024 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2024 samtals kr. 2.354.759.273.746 og er áætlað fjárframlag ársins 2024 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 4.544.685.398 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:
| Lífeyrissjóður | Fjárhæð kr. | Hlutfall |
| Festa lífeyrissjóður | 824.040.310 | 18,13% |
| Gildi lífeyrissjóður | 2.930.246.743 | 64,48% |
| Lífeyrissjóður Rangæinga | 56.045.660 | 1,23% |
| Lífeyrissjóður Vestmannaeyja | 78.139.710 | 1,72% |
| Stapi lífeyrissjóður | 656.212.975 | 14,44% |
| Samtals | 4.544.685.398 | 100% |
Við greiðslu fjárframlags ársins 2026, í október 2026, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2025 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2024.
4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2024.
Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2023 er kr. 2.202.455.683.221. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2023 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1540/2024, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2024 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2023 er kr. 2.379.349.125 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2024 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990. Leiðrétting fjárframlags ársins 2024, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1540/2024, nemur því samtals kr. 7.732.884 til hækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2024 eins og það var ákvarðað skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1540/2024 hækka þær fjárhæðir eins og þær eru tilgreindar í eftirfarandi töflu:
| Lífeyrissjóður | Fjárhæð kr. | Hlutfall |
| Almenni lífeyrissjóðurinn | 49.684 | 0,643% |
| Birta lífeyrissjóður | 260.637 | 3,371% |
| Eftirlaunasjóður FÍA | 15.968 | 0,207% |
| Festa lífeyrissjóður | 983.623 | 12,720% |
| Frjálsi lífeyrissjóðurinn | 152.840 | 1,977% |
| Gildi lífeyrissjóður | 3.034.074 | 39,236% |
| Íslenski lífeyrissjóðurinn | 72.689 | 0,940% |
| Lífeyrissjóður bankamanna-aldur | 34.063 | 0,441% |
| Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall | 11.329 | 0,147% |
| Lífeyrissjóður bænda | 19.294 | 0,250% |
| Lífeyrissjóður Rangæinga | 58.074 | 0,751% |
| Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar | 3.789 | 0,049% |
| Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. | 3.403 | 0,044% |
| Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar | 28.805 | 0,373% |
| Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A | 499.428 | 6,459% |
| Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B | 134.668 | 1,742% |
| Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A | 455.776 | 5,894% |
| Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V | 135.712 | 1,755% |
| Brú lífeyrissj. starfsmanna sveitarfélaga-B L700LsV | 13.301 | 0,172% |
| Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands | 2.204 | 0,029% |
| Lífsverk lífeyrissjóður | 20.995 | 0,272% |
| Lífeyrissjóður verslunarmanna | 656.251 | 8,487% |
| Lífeyrissjóður Vestmannaeyja | 138.419 | 1,790% |
| Stapi lífeyrissjóður | 834.533 | 10,792% |
| SL lífeyrissjóður | 113.325 | 1,466% |
| Samtals | 7.732.884 | 100% |
5. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð sama efnis nr. 1540/2024.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 2. desember 2025.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Anna V. Ólafsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 18. desember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.