Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 2. apríl 2025

Stofnreglugerð

1487/2024

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2025 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2025:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. skal nema 1.104.716 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr., skal nema 309.865 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., skal nema 309.865 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 45.590 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 13.199 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 34.316 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. skal vera 106.782 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1421/2023, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2024 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

Bjarni Benediktsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.