Prentað þann 21. nóv. 2024
1421/2023
Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2024 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
1. gr.
Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:
- Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. skal nema 1.059.172 kr. á mánuði.
- Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr., skal nema 297.090 kr. á mánuði.
- Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., skal nema 297.090 kr. á mánuði.
- Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 43.710 kr. á mánuði.
- Sérstakar barnagreiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 12.655 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 32.901 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
- Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. skal vera 102.380 kr. á mánuði.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, öðlast gildi 1. janúar 2024. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1435/2022, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2023 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.