Prentað þann 22. mars 2026
1487/2025
Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumark á árinu 2026 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
1. gr.
Fjárhæðir greiðslna og frítekjumark samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir á árinu 2026:
- Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. skal nema 1.162.162 kr. á mánuði.
- Greiðsla til foreldris í námi skv. 1. mgr. 16. gr. skal nema 325.978 kr. á mánuði.
- Grunngreiðsla til foreldris skv. 1. mgr. 20. gr. skal nema 325.978 kr. á mánuði.
- Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. skulu nema 47.960 kr. á mánuði.
- Sérstakar barnagreiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. skulu nema 13.886 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 36.100 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
- Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. skal vera 112.335 kr. á mánuði.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. einnig 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, öðlast gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1487/2024, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2025 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.
Inga Sæland.
Ásgeir Runólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.