Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fyrri útgáfa

Prentað þann 13. apríl 2025

Reglugerð með breytingum síðast breytt 14. júní 2023
Sýnir breytingar gerðar 14. júní 2023 af rg.nr. 578/2023

800/2015

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó.

1. gr. Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja, eftir því sem við á:

  1. ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
  2. ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
  3. ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2010/788/SSUÖ frá 20. desember 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2008/369/SSUÖ, fylgiskjal 1.
1.1 Ákvörðun ráðsins 2012/811/SSUÖ frá 20. desember 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.1.
1.2 Ákvörðun ráðsins 2014/147/SSUÖ frá 17. mars 2014 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.2.
1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/620 frá 20. apríl 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.3.
1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1173 frá 18. júlí 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.4.
1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/2231 frá 12. desember 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.5.
1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/203 frá 6. febrúar 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.6.
1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/399 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.7.
1.8 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/905 frá 29. maí 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.8.
1.9 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1340 frá 17. júlí 2017 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.9.
1.10 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/202 frá 9. febrúar 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.10.
1.11 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/569 frá 12. apríl 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.11.
1.12 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1940 frá 10. desember 2018 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.12.
1.13 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/2109 frá 9. desember 2019 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.13.
1.14 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/190 frá 12. febrúar 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.14.
1.15 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/417 frá 19. mars 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.15.
1.16 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1509 frá 16. október 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.16.
1.17 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/2033 frá 10. desember 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.17.
1.18 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/2144 frá 17. desember 2020 um breytingu ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.18.
1.19 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1866 frá 22. október 2021 um breytingu ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.19.
1.21 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1020 frá 27. júní 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.21.
1.22 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2241 frá 14. nóvember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.22.
1.23 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2377 frá 5. desember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.23.
1.24 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2398 frá 8. desember 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.24.
1.25 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2412 frá 8. desember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.25.
  1.26  Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.26.
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 frá 18. júlí 2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.
2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 521/2013 frá 6. júní 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.1.
2.2 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 271/2014 frá 17. mars 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.2.
2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/614 frá 20. apríl 2015 um framkvæmd 4. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.3.
2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/613 frá 20. apríl 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 889/2005, fylgiskjal 2.4.
2.5 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/1165 frá 18. júlí 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.5.
2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/2230 frá 12. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.6.
2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/199 frá 6. febrúar 2017 um framkvæmd 5. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.7.
2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/396 frá 7. mars 2017 um framkvæmd 5. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.8.
2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/904 frá 29. maí 2017 um framkvæmd 2. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.9.
2.10 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1326 frá 17. júlí 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.10.
2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/197 frá 9. febrúar 2018 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.11.
2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/566 frá 12. apríl 2018 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.12.
2.13 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/1931 frá 10. desember 2018 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.13.
2.14 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/2101 frá 9. desember 2019 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.14.
2.15 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/189 frá 12. febrúar 2020 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.15.
2.16 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/415 frá 19. mars 2020 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.16.
2.17 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/1507 frá 16. október 2020 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.17.
2.18 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/2021 frá 10. desember 2020 um framkvæmd 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.18.
2.19 Framkvæmdareglugerð ráðsins (ESB) 2020/2133 frá 17. desember 2020 um framkvæmd 9. gr. í reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.19.
2.20 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/1863 frá 22. október 2021 um breytingu reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.20.
2.21 Framkvæmdareglugerð ráðsins (ESB) 2021/2177 frá 9. desember 2021 um framkvæmd 9. gr. í reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.21.
2.22 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/2176 frá 9. desember 2021 um breytingu reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, sbr. fylgiskjal 2.22.
2.23 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1009 frá 27. júní 2022 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.23.
2.24 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/2237 frá 14. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.24.
2.25 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/2373 frá 5. desember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.25.
2.26 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2397 frá 8. desember 2022 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.26.
2.27 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2401 frá 8. desember 2022 um framkvæmd 9. gr. í reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.27.
  2.28  Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.28.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vefjum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar "Skrá yfir varnartengdar vörur". Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

Fylgiskjöl 1-1.3 eru birt sem fylgiskjöl 1-4 með reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó nr. 800/2015. Fylgiskjöl 2-2.4 eru birt sem fylgiskjöl 5 og 7-10 við sömu reglugerð.

3. gr. Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:
a) ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „Bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
b) ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
c) tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
d) tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
e) tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
f) vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr. Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr. Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi alþýðulýðveldið Kongó (Austur-Kongó) nr. 155/2009 og síðari breytingar, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 544/2011 um breyting á reglugerðum nr. 154/2009, 140/2009, 155/2009, 148/2009, 147/2009, 299/2010 og 300/2010 um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir.

 Fylgiskjal 1.26.

 ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2023/726
 frá 31. mars 2023
 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni
 að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum

 RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
 með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
 með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
 og að teknu tilliti til eftirfarandi:
 1) Hinn 9. desember 2022 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun öryggisráðs Sameinuðu
 þjóðanna nr. 2664 (2022) sem vísar til fyrri ályktana um að leggja á refsiaðgerðir til að bregðast við ógnum
 við frið og öryggi á alþjóðavettvangi og leggur áherslu á að ráðstafanir sem aðildarríki SÞ grípa til, í því
 skyni að framkvæma refsiaðgerðir, fari að skuldbindingum þeirra samkvæmt alþjóðalögum og að þeim sé
 ekki ætlað að hafa neikvæð mannúðaráhrif á óbreytta borgara eða á mannúðaraðstoð eða þau sem veita
 hana.
 2) Þar sem það lýsir sig reiðubúið til að endurskoða, leiðrétta og slíta, ef við á, refsiaðgerðum, sem taka tillit
 til þess hvernig aðstæður á jörðu niðri þróast og þess að nauðsynlegt er að lágmarka óráðgerð neikvæð áhrif á mannúðarmál, ákvað öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í 1. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) að útvegun, vinnsla eða greiðsla fjármuna, annarra fjáreigna eða efnahagslegs auðs eða útvegun vara og þjónustu sem nauðsynleg er til að tryggja að veita megi tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks sé heimil og brjóti ekki gegn frystingu eigna sem lögð er á af
 öryggisráðinu eða framkvæmdanefndum um þvingunaraðgerðir. Í þessari ákvörðun er 1. mgr. ályktunar
 öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) nefnd „undanþága af mannúðarástæðum“. Undanþága af mannúðarástæðum á við um tiltekna aðila eins og sett er fram í þeirri ályktun.
 3) Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er gerð krafa um að undanþága af mannúðarástæðum frá aðgerðum varðandi frystingu eigna gildi um refsiaðgerð 1267/1989/2253 vegna Íslamska ríkisins (Da’esh) og AlQaida-samtakanna í tvö ár frá þeim degi þegar ályktun nr. 2664 (2022) var samþykkt og því lýst yfir að
 öryggisráðið hyggist taka ákvörðun um framlengingu á beitingu ályktunar nr. 2664 (2022) fyrir þann dag
 þegar beiting þeirrar undanþágu myndi að öðrum kosti falla úr gildi.
 4) Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er áhersla lögð á að ef undanþága af mannúðarástæðum stangast á við fyrri ályktanir skuli hún koma í stað slíkra fyrri ályktana að því marki sem um slíkan árekstur er að ræða. Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er þó skýrt að 1. mgr. ályktunar öryggisráðsins nr. 2615
 (2021) gildir áfram.
 5) Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er þess krafist að veitendur sem reiða sig á undanþágu af mannúðarástæðum geri eðlilegar ráðstafanir til að lágmarka hvers kyns ávinning sem er bannaður samkvæmt refsiaðgerðum, hvort sem er vegna beinnar eða óbeinnar veitingar eða ólöglegrar notkunar, fyrir tilgreinda einstaklinga eða rekstrareiningar, þ.m.t. með því að styrkja áætlanir og ferli veitenda vegna áhættustjórnunar og áreiðanleikakönnunar.
 6) Ráðið telur að undanþága af mannúðarástæðum frá aðgerðum varðandi frystingu eigna samkvæmt ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) ætti einnig að gilda í tilvikum þar sem Sambandið ákveður að samþykkja viðbótaraðgerðir varðandi frystingu fjármuna og efnahagslegs auðs auk þeirra sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndir þess um þvingunaraðgerðir ákveða.
 7) Því er nauðsynlegt að breyta ákvörðunum ráðsins 2010/413/SSUÖ(1), 2010/788/SSUÖ(2), 2014/450/SSUÖ(3), (SSUÖ) 2015/740(4), (SSUÖ) 2015/1333(5), (SSUÖ) 2016/849(6), (SSUÖ) 2016/1693(7) og (SSUÖ) 2017/1775(8).
 8) Frekari aðgerða er þörf af hálfu Sambandsins til þess að hrinda í framkvæmd tilteknum aðgerðum í ákvörðun þessari.
 SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:

 1. gr.

 Ákvörðun 2010/788/SSUÖ er breytt sem hér segir:
 1) Eftirfarandi málsgrein bætist við í 5. gr.:
 „10. Ákvæði 1. og 2. mgr. skulu ekki gilda um útvegun, vinnslu eða greiðslu fjármuna, annarra fjáreigna
 eða efnahagslegs auðs eða útvegun vara og þjónustu sem nauðsynleg er til að tryggja að veita megi
 tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks þegar slík aðstoð
 og önnur starfsemi er framkvæmd af hálfu:
 a) Sameinuðu þjóðanna, þ.m.t. áætlana þeirra, fjármuna og annarra rekstrareininga og stofnana, sem og
 sérstofnana þeirra og tengdra stofnana,
 b) alþjóðastofnana,
 c) stofnana á sviði mannúðarmála sem hafa stöðu áheyrnarfulltrúa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
 og aðila að þessum mannúðarstofnunum,
 d) frjálsra félagasamtaka með tvíhliða eða marghliða fjármögnun sem taka þátt í viðbragðsáætlunum
 Sameinuðu þjóðanna um mannúðaraðstoð, viðbragðsáætlunum vegna flóttafólks, öðrum áköllum
 Sameinuðu þjóðanna eða klösum á sviði mannúðarmála sem samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum samhæfir,
 e) starfsfólks, styrkþega, dótturfélaga eða framkvæmdaraðila þeirra rekstrareininga sem um getur í a- til
 d-lið á meðan og að því marki sem þeir starfa í þessum stöðum eða
 f) annarra viðeigandi aðila eins og framkvæmdanefndin um þvingunaraðgerðir ákvarðar að því er varðar
 aðila og rekstrareiningar sem um getur í 1. mgr. 3. gr. og ráðið að því er varðar aðila og rekstraraðila
 sem um getur í 2. mgr. 3. gr.“
 2) Eftirfarandi kemur í stað 7. mgr. 5. gr.:
 „7. Með fyrirvara um ákvæði 10. mgr. 5. gr., að því er varðar aðila og rekstrareiningar sem eru á skrá í II.
 viðauka má einnig gera undanþágur vegna fjármuna og efnahagslegs auðs sem eru nauðsynleg í mannúðarskyni, t.d. til þess að veita eða greiða fyrir því að veitt sé aðstoð, þ.m.t. sjúkragögn og matvæli, eða
 vegna flutnings starfsmanna hjálparstofnana og tengdrar aðstoðar eða vegna brottflutnings frá Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.“

 2. gr.

 Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

 Gjört í Brussel 31. mars 2023.

 Fyrir hönd ráðsins,
 forseti.
 J. ROSWALL

 (1) Ákvörðun ráðsins 2010/413/SSUÖ frá 26. júlí 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2007/140/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 195, 27.7.2010, bls. 39).
 (2) Ákvörðun ráðsins 2010/788/SSUÖ frá 20. desember 2010 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsinsí Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (Stjtíð. ESB L 336, 21.12.2010, bls. 30).
 (3) Ákvörðun ráðsins 2014/450/SSUÖ frá 10. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Súdan og niðurfellingu ákvörðunar 2011/423/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 203, 11.7.2014, bls. 106).
 (4) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/740 frá 7. maí 2015 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Suður-Súdan og niðurfellingu ákvörðunar 2014/449/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 117, 8.5.2015, bls. 52).
 (5) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 frá 31. júlí 2015 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og niðurfellingu ákvörðunar 2011/137/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 206, 1.8.2015, bls. 34).
 (6) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/849 frá 27. maí 2016 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu og niðurfellingu ákvörðunar 2013/183/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 141, 28.5.2016, bls. 79).
 (7) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1693 frá 20. september 2016 um þvingunaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu (Da‘esh) og Al-Qaidasamtökunum og einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum sem þeim tengjast og um niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2002/402/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 255, 21.9.2016, bls. 25).
 (8) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 frá 28. september 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí (Stjtíð. ESB L 251, 29.9.2017, bls. 23).

 Fylgiskjal 2.28.

 REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2023/720
 frá 31. mars 2023
 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni
 að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum

 RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
 með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
 með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
 og að teknu tilliti til eftirfarandi:
 1) Evrópusambandið getur beint þvingunaraðgerðum, þ.m.t. frystingu fjármuna og efnahagslegs auðs, gegn
 tilgreindum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum og stofnunum. Reglugerðir ráðsins koma
 þessum aðgerðum til framkvæmda.
 2) Hinn 9. desember 2022 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun nr. 2664 (2022). Með 1. mgr.
 þeirrar ályktunar er innleidd undanþága frá refsiaðgerðum í formi frystingar eigna, sem öryggisráðið eða
 framkvæmdanefndir þess um þvingunaraðgerðir beita vegna mannúðaraðstoðar og annarrar starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks, sem gildir um tiltekna aðila. Í þessari reglugerð er 1. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) nefnd „undanþága af mannúðarástæðum“.
 3) Hinn 31. mars 2023 var ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 (1) samþykkt til að koma ályktun öryggisráðs
 SÞ nr. 2664 (2022) til framkvæmda í lögum Sambandsins.
 4) Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er áhersla lögð á að ef undanþága af mannúðarástæðum frá
 aðgerðum varðandi frystingu eigna stangast á við fyrri ályktanir skuli hún koma í stað slíkra fyrri ályktana
 að því marki sem um slíkan árekstur er að ræða. Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er þó skýrt að 1.
 mgr. ályktunar öryggisráðsins nr. 2615 (2021) gildir áfram.
 5) Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er þess krafist að veitendur sem reiða sig á undanþágu af mannúðarástæðum geri eðlilegar ráðstafanir til að lágmarka hvers kyns ávinning sem er bannaður samkvæmt refsiaðgerðum, hvort sem er vegna beinnar eða óbeinnar veitingar eða ólöglegrar notkunar, fyrir einstaklinga eða rekstrareiningar sem eru á skrá samkvæmt viðkomandi reglugerð, þ.m.t. með því að styrkja áætlanir og ferli veitenda vegna áhættustjórnunar og áreiðanleikakannana.
 6) Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) er gerð krafa um að undanþága af mannúðarástæðum frá aðgerðum varðandi frystingu eigna gildi um refsiaðgerð 1267/1989/2253 vegna Íslamska ríkisins (Da’esh) og AlQaida-samtakanna í tvö ár frá þeim degi þegar ályktun nr. 2664 (2022) var samþykkt og því lýst yfir að
 öryggisráðið hyggist taka ákvörðun um framlengingu á beitingu ályktunar nr. 2664 (2022) fyrir þann dag
 þegar beiting þeirrar undanþágu myndi að öðrum kosti falla úr gildi.
 7) Ráðið telur að undanþága af mannúðarástæðum frá aðgerðum varðandi frystingu eigna samkvæmt ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2664 (2022) ætti einnig að gilda í tilvikum þar sem Sambandið ákveður að samþykkja viðbótaraðgerðir varðandi frystingu fjármuna og efnahagslegs auðs, auk þeirra sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndir þess um þvingunaraðgerðir ákveða.
 8) Breytingarnar falla undir gildissvið sáttmálans og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg til að hrinda þeim í framkvæmd, einkum til að tryggt sé að þeim sé beitt með samræmdum hætti í öllum aðildarríkjunum.
 9) Því ætti að breyta reglugerðum ráðsins (EB) nr. 881/2002(2), (EB) nr. 1183/2005(3), (ESB) nr. 267/2012(4), (ESB) nr. 747/2014(5), (ESB) 2015/735(6), (ESB) 2016/1686(7), (ESB) 2016/44(8), (ESB) 2017/1509(9) og (ESB) 2017/1770(10) til samræmis við það.
 SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:

 1. gr.

 Reglugerð (EB) nr. 1183/2005 er breytt sem hér segir:
 1) Eftirfarandi málsgrein bætist við í 2. gr.:
 „3. Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda ekki um það þegar nauðsynlegir fjármunir eða efnahagslegur auður er gerður
 aðgengilegur til að tryggja að veita megi tímanlega mannúðaraðstoð eða styðja við aðra starfsemi sem styður við grunnþarfir fólks þegar slík aðstoð og önnur starfsemi er framkvæmd af hálfu:
 a) Sameinuðu þjóðanna, þ.m.t. áætlana þeirra, fjármuna og annarra rekstrareininga og stofnana, sem og
 sérstofnana þeirra og tengdra stofnana,
 b) alþjóðastofnana,
 c) stofnana á sviði mannúðarmála sem hafa stöðu áheyrnarfulltrúa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
 og aðila að þessum mannúðarstofnunum,
 d) frjálsra félagasamtaka með tvíhliða eða marghliða fjármögnun sem taka þátt í viðbragðsáætlunum
 Sameinuðu þjóðanna um mannúðaraðstoð, viðbragðsáætlunum vegna flóttafólks, öðrum áköllum
 Sameinuðu þjóðanna eða klösum á sviði mannúðarmála sem samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum samhæfir,
 e) starfsfólks, styrkþega, dótturfélaga eða framkvæmdaraðila þeirra rekstrareininga sem um getur í a- til
 d-lið á meðan og að því marki sem þeir starfa í þessum stöðum eða
 f) annarra viðeigandi aðila eins og framkvæmdanefndin um þvingunaraðgerðir ákvarðar að því er varðar
 I. viðauka og ráðið að því er varðar I. viðauka a.“
 2) Í stað 4. gr. b kemur eftirfarandi:
 „4. gr. b
 1. Með fyrirvara um 3. mgr. 2. gr. og þrátt fyrir 1. og 2. mgr. 2. gr. geta lögbær stjórnvöld í aðildarríkjunum
 heimilað að frystir fjármunir eða efnahagslegur auður, sem tilheyrir einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í I. viðauka a, verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í I. viðauka a, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa gengið úr skugga um að þessir fjármunir eða efnahagslegur auður sé nauðsynlegur í mannúðarskyni, s.s. til að veita eða greiða fyrir því að veitt sé aðstoð, þ.m.t. sjúkragögn og matvæli eða flutningur starfsmanna hjálparstofnana og tengdrar aðstoðar eða vegna brottflutnings frá Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.
 2. Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um heimildir
 sem eru veittar samkvæmt þessari grein innan fjögurra vikna frá því að heimild er veitt.“
 3) Í stað 7. gr. b kemur eftirfarandi:
 „7. gr. b
 Lagt er bann við því að taka þátt, vitandi vits og af ásetningi, í starfsemi sem miðar að því eða hefur þau
 áhrif að þær aðgerðir er um getur í 1. gr. a og 1. og 2. mgr. 2. gr. eru sniðgengnar.“

 2. gr.

 Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
 Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.

 Gjört í Brussel 31. mars 2023.

 Fyrir hönd ráðsins,
 forseti.
 J. ROSWALL

 (1) Stjtíð. ESB L 94, 3.4.2023, bls. 48.
 (2) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 881/2002 frá 27. maí 2002 sem leggur á tilteknar, sérstakar, takmarkandi ráðstafanir sem beint er að tilteknum einstaklingum og aðilum sem tengjast Íslamska ríkinu (Da'esh) og Al-Qaida-samtökunum (Stjtíð. EB L 139, 29.5.2002, bls. 9).
 (3) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 frá 18. júlí 2005 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (Stjtíð. ESB L 193, 23.7.2005, bls. 1).
 (4) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 267/2012 frá 23. mars 2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010 (Stjtíð. ESB L 88, 24.3.2012, bls. 1).
 (5) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 747/2014 frá 10. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Súdan og niðurfellingu á reglugerðum (EB) nr. 131/2004 og (EB) nr. 1184/2005 (Stjtíð. ESB L 203, 11.7.2014, bls. 1).
 (6) Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/735 frá 7. maí 2015 um þvingunaraðgerðir að því er varðar Suður-Súdan og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 748/2014 (Stjtíð. ESB L 117, 8.5.2015, bls. 13).
 (7) Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/1686 frá 20. september 2016 um viðbótarþvingunaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu (Da'esh) og AlQaida-samtökunum og einstaklingum og lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem þeim tengjast (Stjtíð. ESB L 255, 21.9.2016, bls. 1).
 (8) Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/44 frá 18. janúar 2016 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 (Stjtíð. ESB L 12, 19.1.2016, bls. 1).
 (9) Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1509 frá 30. ágúst 2017 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu og niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 329/2007 (Stjtíð. ESB L 224, 31.8.2017, bls. 1).
 (10) Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1770 frá 28. september 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí (Stjtíð. ESB L 251, 29.9.2017, bls. 1)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.