Prentað þann 22. nóv. 2024
578/2023
Reglugerð um breytingar á reglugerðum sem varða þvingunaraðgerðir gagnvart Alþýðulýðveldinu Kóreu, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Íran, hryðjuverkastarfsemi, Líbíu, Malí, Suður-Súdan og Súdan.
1. gr. Almenn ákvæði.
Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir sem varða Alþýðulýðveldið Kóreu, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Íran, hryðjuverkastarfsemi, Líbíu, Malí, Suður-Súdan og Súdan til að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.
Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eiga við um framkvæmd reglugerðar þessarar.
2. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi reglugerðum er breytt sem hér segir:
a. | Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Alþýðulýðveldið Kóreu, nr. 160/2015, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
1.24 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.24. | |
2.15 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.15. | |
b. | Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, nr. 800/2015, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
1.26 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.26. | |
2.28 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.28. | |
c. | Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2014, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
3.34 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 3.34. | |
4.33 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 4.33. | |
d. | Reglugerð um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi, nr. 448/2014, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
1.15 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.15. | |
3.10 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 3.10. | |
2.6 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.6. | |
e. | Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbyu, nr. 887/2015, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
1.41 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.41. | |
2.39 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.39. | |
f. | Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Malí, nr. 381/2018, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
1.8 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.8. | |
2.6 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.6. | |
g. | Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Suður-Súdan, nr. 900/2015, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
1.3 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.3. | |
2.4 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.4. | |
h. | Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Súdan, nr. 804/2015, ásamt síðari breytingum. | |
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar: | ||
1.1 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.1. | |
2.1 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.1. |
3. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 26. maí 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.