Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 5. des. 2025

Stofnreglugerð

763/2025

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

1. gr.

Hámarksfjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 1. mgr. 24. gr. nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra í fæðingarorlofi:

  1. 700.000 kr. á mánuði vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur fyrir 31. desember 2024.
  2. 800.000 kr. á mánuði vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2025 til og með 31. desember 2025.

2. gr.

Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 197.441 kr. á mánuði.

Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 262.061 kr. á mánuði.

3. gr.

Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 131.260 kr. á mánuði.

Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 262.601 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 54. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1453/2024, um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 2. júlí 2025.

Inga Sæland.

Bjarnheiður Gautadóttir.

B deild - Útgáfudagur: 3. júlí 2025

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.