Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 10. mars 2026

Stofnreglugerð

1492/2025

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna úr fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

1. gr.

Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 207.708 kr. á mánuði.

Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 275.688 kr. á mánuði.

2. gr.

Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 138.086 kr. á mánuði.

Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal nema 275.688 kr. á mánuði.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 54. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, gildir frá og með 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 763/2025, um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.

Inga Sæland.

Ásgeir Runólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.