Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. jan. 2015
Sýnir breytingar gerðar 1. jan. 2015 af rg.nr. 1152/2014

664/2006

Reglugerð um norræna innheimtu sekta og sakarkostnaðar.

1. gr.

Sýslumaðurinn á BlönduósiNorðurlandi vestra ákveður hvort verða skuli við tilmælum skv. 1. gr. laga um fullnustu refsidóma, sem kveðnir hafa verið upp í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð, nr. 69, 12. desember 1963. Þá ber sýslumaðurinn á Blönduósi fram tilmæli eftir ákvæði 2. gr. sömu laga.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 20. og 26. gr. laga um fullnustu refsidóma, sem kveðnir hafa verið upp í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð, o.fl., nr. 69, 12. desember 1963, sbr. lög nr. 70, 13. júní 2006, öðlast þegar gildi.

 Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 14. júlí 2006. 

 Björn Bjarnason. 

 Anna Sigríður Arnardóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.