Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 23. nóv. 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 8. júní 2024
Sýnir breytingar gerðar 8. júní 2024 af rg.nr. 685/2024

477/2016

Reglugerð um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirfarandi ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1375 frá 10. ágúst 2015 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2016, frá 6. febrúar 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 31. mars 2016, bls. 114.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1478 frá 14. október 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1375 að því er varðar sýnatöku, tilvísunargreiningaraðferð og innflutningsskilyrði í tengslum við eftirlit með tríkínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 113.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/519 frá 24. mars 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1375 að því er varðar prófanir vegna tríkínu í hófdýrum og undanþágu Breska konungsríkisins frá því að prófa alisvín vegna tríkínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 233/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 110.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1418 frá 22. ágúst 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1375 að því er varðar eftirlit með tríkínu í tengslum við stykkjun skrokka og aðrar greiningaraðferðir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2023, frá 3. febrúar 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75, frá 19. október 2023, bls. 1.
  5.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2156 frá 17. október 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1375 að því er varðar tilteknar skýrslugjafarkröfur fyrir aðildarríki sem eru undanþegin því að prófa fyrir tríkínu í kjöti og skrokkum af alisvínum í sláturhúsum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 44/2024, frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 425.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 136/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2075/2005 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti, auk áorðinna breytinga.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.