Fara beint í efnið

Prentað þann 23. nóv. 2024

Breytingareglugerð

685/2024

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 477/2016 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 5. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2156 frá 17. október 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1375 að því er varðar tilteknar skýrslugjafarkröfur fyrir aðildarríki sem eru undanþegin því að prófa fyrir tríkínu í kjöti og skrokkum af alisvínum í sláturhúsum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 44/2024, frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 425.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.